Vindlar og kynlíf auka lífslíkur íbúa Kúbu
Það er margra ára nám að verða útlærður vindlagerðarmaður enda þykja hinir handofnu kúbönsku vindlar vera með þeim allra bestu í heiminum. mbl.is/Þorkell
Yfir 60% þeirra áttu foreldra sem einnig náðu að verða eldri en 100 ára.
Um 11,2 milljónir manna búa á Kúbu og þar búa u.þ.b. 3.000 manns sem hafa náð að lifa í heila öld eða lengur.
Rannsóknin leiddi í ljóst að líf eldri borgaranna er agað án þess að vera strangt.
Enginn þeirra sem tók þátt í könnuninni drakk vín en þátttakendur sögðust elska kaffi og vindla, sem þeir neyttu í miklu magni.
Þá var fólkið með heilbrigðan áhuga á ýmsum hlutum t.a.m. kynlífi að sögn Nancy Nepomuceno sem stýrði rannsókninni.
Flestir eru skýrir í kollinum, lifa góðu lífi og starfa með höndunum í sveitahéruðum landsins.
Nánast allir sem tóku þátt í rannsókninni sögðust borða fisk, egg, mjólk, hvítt kjöt og grænmeti, sem var eldað með því að nota lítið salt og önnur krydd.
Meðallífslíkur á Kúbu eru 76 ár, en í Villa Clara-héraðinu þar sem rannsóknin var gerð, eru lífslíkurnar 78 ár.
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup























