Konur velja heldur menn með kvenleg útlitseinkenni
Frá þessu greinir fréttavefur BBC.
Um 400 konur og karlar í Bretlandi tóku þátt í rannsókninni með því að meta andlitsmyndir af körlum þar sem tilteknir drættir höfðu verið ýktir lítillega. Menn með karlmannlega drætti á borð við stórt nef og lítil augu voru taldir kuldalegri, líklegri til framhjáhalds og verri foreldri en þeir sem höfðu kvenlegri einkenni.
Aðalhöfundur rannsóknarinnar segir að bæði konur og karlar sem þátt tóku í rannsókninni hafi verið þessarar skoðunar.
Annar sálfræðingur segir, að niðurstöðurnar séu að mörgu leyti skiljanlegar. Í nútímasamfélagi sé líkamlegur styrkur ekki nauðsynlegur, heldur stafi hugsanlega af honum ógn. Konur kunni að velja menn með kvenleg útlitseinkenni vegna þess að þannig geti þær dregið úr hættunni á að þær sjálfar eða börn þeirra sæti ofbeldi af hálfu mannsins.
Bloggað um fréttina
-
Oddgeir Einarsson Ofbeldisfull andlit -
Margrét St Hafsteinsdóttir Kvenlegir karlmenn í tísku? -
Heiða María Sigurðardóttir Makaval en ekki val til mökunar -
Billi bilaði Verða konur þá karlmannlegri? -
Birna Dis Vilbertsdóttir Ég tók ekki þátt í þessari könnun
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























