Sýndarlögreglumenn halda uppi eftirliti á kínverskum vefsíðum

Með lögum skal net byggja, en með ólögum eyða.
Með lögum skal net byggja, en með ólögum eyða. Reuters

Kínversk stjórnvöld hyggjast senda tvo sýndarlögreglumenn á netið sem ætlað er að halda uppi eftirliti og berjast gegn „ólöglegri starfssemi“ á netinu, að því er kínverski ríkisfjölmiðillinn China Daily segir.

Um er að ræða tölvuteiknaðar persónur, karl og konu, sem munu birtast á skjám tölvunotenda á hálftíma fresti. Lögreglumennirnir munu „minna þá á netöryggi“, að því er dagblaðið segir.

Lögreglumennirnir munu fyrst birtast á fréttaveitum frá og með næsta laugardegi. Í framhaldinu munu þeir birtast á öllum vefsíðum í Peking og spjallvefjum fyrir lok þessa árs.

Stjórnvöld í Kína ritskoða allt efni sem sett er á netið sem og það efni sem birtist í fjölmiðlum. Þau koma í veg fyrir efni sem þau telja að stafi ógn af, bæði stjórnmálalega og siðferðislega séð. Sumir netnotendur hafa hinsvegar fundið leiðir til þess að komast hjá þessari ritskoðun stjórnvalda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert