Leitað að Steve Fossett með aðstoð Google Earth

Leitarsvæðið nær yfir 44.000 ferkílómetra í óbyggðum Nevada. Auk þess …
Leitarsvæðið nær yfir 44.000 ferkílómetra í óbyggðum Nevada. Auk þess er leitað í hluta Kaliforníu AP

Google hefur nú boðið fram aðstoð sína í leitinni að ævintýramanninum Steve Fossett með því að birta glænýjar gervihnattamyndir af Nevada í Google Earth. Margir skoða nú þessar myndir í þeim tilgangi að koma auga á þann stað þar sem flugvél Fossets brotlenti.

Verkefnið var hleypt af stokkunum í samstarfi við vefþjónustu hjá Amazon sem heitir Mechanical Turk.

Gripið er til þessara úrræða í kjölfar árangurslausrar leitar að Fossett nú um helgina.

Fossett hvarf þann 3. september sl. en þá lagði hann af stað í flugferð frá Flying M Ranch, sem er skammt frá Yerington í Nevada, í eins hreyfils vél af Citabria gerð. Flugferðin átti ekki að taka lengri tíma en þrjár klukkustundir.

Leitarsvæðið nær yfir 44.000 ferkílómetra í óbyggðum Nevada. Auk þess er leitað í hluta Kaliforníu.

Sem fyrr segir hefur Google nú lagt sitt af mörkum í því skyni að finna Fossett með því að birta glænýjar gervihnattamyndir af Nevada í Google Earth.

Í framhaldinu bjó Amazon til leitarforrit, sem byggir á samvinnu margra einstaklinga, sem keyrt er í gegnum Mechanical Turk vefþjónustuna. Hún gengur út á það að fólk fær greitt fyrir að vinna ákveðin verk sem tölvur eiga í erfiðleikum með að ljúka, s.s. að þýða texta og meta myndir.

Hver sá sem tekur þátt í Mechanical Turk verkefninu getur halað nýjum myndum af Nevada og viðeigandi hugbúnaði inn á tölvuna sína. Fólk getur skoða myndirnar og merkt við þá staði sem það telur líklegt að vél Fossets hafi brotlent.

Fréttavefur BBC greindi frá þessu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert