Nálastungur bestar til að lina bakverki
AP
Aftur á móti fann einungis einn af hverjum fjórum sjúklingum sem meðhöndlaður var með hefðbundnum lyfjum og öðrum vestrænum lækningaaðferðum fyrir bata.
Jafnvel gervinálastungur höfðu betri áhrif á sjúklingana sem þátt tóku í rannsókninni en hefðbundin, vestræn lyf, og velta vísindamennirnir því fyrir sér hvort líkaminn bregðist jákvætt við öllum nálastungum, eða einfaldlega lyfleysuáhrifunum.
Einn höfunda rannsóknarinnar segir, að nálastungur lofi mjög góðu sem áhrifarík meðhöndlun krónískra bakverkja. Sjúklingarnir sögðu að bæði hefði dregið úr verkjunum og þeim hömlum sem verkirnir höfðu á daglegt líf þeirra.
Þetta er umfangsmesta rannsókn sem gerð hefur verið á nálastungumeðferð við bakverkjum. Einn höfundanna sagði niðurstöðurnar renna stoðum undir þá kenningu að verkjaboð til heilans megi stöðva með því annarri örvun. Það kunni einnig að útskýra niðurstöðurnar að sjúklingarnir hafi verið jákvæðir gagnvart nálastungum, eða neikvæðir gagnvart hefðbundnum lækningum, og það geti skýrt lyfleysuáhrifin.
Bloggað um fréttina
-
Jón Grétar Sigurjónsson Léleg vísindafréttamennska -
Níels A. Ársælsson. Nálastungur -
Bogi Jónsson Við erum allt of lyfjaglöð -
Ingi B. Ingason Hættu að reykja með hjálp nálastungu -
Billi bilaði Svo skal böl bæta...
-
Eyjólfur: Vilja sýna sig og sanna
-
Keppt í hugviti
-
Blaðamannafundur Lars Lagerbäck
-
Heimir: Erfiðara að velja Japanshópinn
-
Lagerbäck: Vildi taka þessa áhættu
-
Skart stöðvað á leið úr landi
-
Enn gýs í Eldhringnum
-
Tvær bílasprengjur í Sýrlandi
























