Slysatíðni í þotuflugi fer ótvírætt lækkandi

Boeing 767 þotur
Boeing 767 þotur Af vef Boeing

Slysatíðni í þotuflugi í heiminum fer ótvírætt lækkandi, og ef hún hefði haldist óbreytt frá því sem var 1996 hefðu slys á síðasta ári verið 30 en ekki 11 eins og reyndin var. Þetta kom fram í máli Jim Burins, tæknistjóra Flight Safety Foundation, á ráðstefnu um flugöryggismál sem haldin var nýlega.

Árið 1996 voru um 1,2 slys miðað við eina milljón flugtaka í flugi á þotum frá vestrænum framleiðendum. Á síðasta ári var þessi tíðni komin í 0,5 slys.

Þetta kemur fram í frétt á vef Samgönguráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert