Sólin drepur yfir 60.000 á ári
Yfir 60.0000 manns deyja á ári hverju af völdum of mikilla sólbaða, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Meirihluti dauðsfalla er út af krabbameinum sem myndast í húðinni vegna skaðlegra útfjólublárra geisla.
Útfjólubláir geislar valda einnig sólbruna, frunsum, og þroska húðina, segir í nýrri skýrslu stofnunarinnar um áhrif útfjólublárra geisla á heilsu fólks.
Maria Neira, læknir hjá Alþjóðheilbrigðisstofnunni segir á fréttavef BBC að „allir þurfi á sól að halda en of mikil sól getur verið hættuleg, jafnvel lífshættuleg."
„Sem betur fer, eru sjúkdómar tengdir útfjólubláum geislum eins og sortuæxli og önnur húðkrabbamein, nær alveg fyrirbyggjanlegir með einföldum aðgerðum, eins og að nota sólarvörn, forðast ljósabekki og takmarka sólböð” segir Maria.
Allir verða fyrir áhrifum útfjólublárra geisla að einhverju leiti og eru geislar í litlu magni gagnlegir fyrir heilsuna, þar sem geislarnir örva húðina til að framleiða D-vítamín.
Of mikið magn útfjólublárra geisla geta hins vegar verið mjög skaðlegir. Magn geisla fer eftir tíma dags og árstíma. Magnið er hæst þegar sólin er hátt á himni, yfirleitt á milli 10 til 2 á daginn.
Breiddargráða og hæð yfir sjávarmáli hefur einnig áhrif. Útfjólubláir geislar eru sterkari nær miðbaug og í mikilli hæð. Einnig endurkastar vatn, snjór, sandur, og sjór útfjólubláum geislum.Laura-Jane Armstrong, hjá Krabbameinsleitarfélagi í Bretlandi segir skýrsluna sýna að augljóslega bendi til að of mikil sólböð eru hættuleg heilsu húðarinnar.
„Okkar helstu skilaboð til fólks eru að forðast sólbruna, forðast sólböð um hádegið og nota sólarvörn,” segir Laura-Jane.

























