Tækni & vísindi
| mbl
| 18.12.2007
| 11:04
| Uppfært
15:12
Tengsl á milli krabbameins og skorts á sólarljósi
Brynjar Gauti
Nýjar rannsóknir benda til þess að tengsl séu á milli tíðni lungnakrabbameins og skorts á sólarljósi. Er þetta rakið til þess að líkaminn myndar D-vítamín þegar hann verður fyrir útfjólubláum geislum sólarinnar en D-vítamín virðist hinda vöxt krabbameinsfruma í lungum. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.
Samkvæmt rannsókninni hækkar tíðni lungnakrabbameins með aukinni fjarlægð frá miðbaug en magn útfjólublárra geisla í sólarljósinu er mest við miðbaug og minnkar eftir því sem fjær dregur.Sérfræðingar vara þó við of miklu sólarljósi vegna hættu á húðkrabbameini og segja áhættuna sem fylgi sólböðum mun meiri en hugsanlegan ávinning.
Rannsóknin, sem unnin var af vísindamönnum við San Diego háskólann í Kaliforníu í Bandaríkjunum og greint er frá í tímaritinu Journal of Epidemiology and Community Health er byggð á gögnum frá 11 löndum í hinum ýmsu heimsálfum.
Ekki er tekið tillit til þess í rannsókninni hversu mikið fólk á mismunandi svæðum er í sólinni en menningarmunur ræður m.a. miklu þar um.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
Til sölu Volvo 940GL árg.91. Nýskoðaður eðalvagn.
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
Zimmermann píanó
Til sölu vel meðfarið Zimmermann píanó. Verð 125.000.
Upplýsingar í síma 84589...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði - fæst með eða án þakefnis. Verð kr. 374.90...























