Hvíthákarl í Norðursjó?
Sár á seli sem fannst við strendur Englands benda til þess að hvítur hákarl hafi tekið upp búsetu í Norðursjó. mbl.is
Sár afskræmds sels sem fannst við strendur Englands þykja benda til þess að hvítur hákarl dveljist í Norðursjó. Chris Taylor, skipstjóri björgunarskips og menntaður líffræðingur, fann selskrokkinn í Sheringham höfninni á austurströnd Englands. Hann sagði BBC frá því að sár selsins beri einkenni árásar hvíthákarls.
„Meiðslin líta út fyrir að vera af völdum hákarls. Sagtennt bitið var á síðunni á selnum, sem einkennir hákarlsbit. Farið eftir bitið er um 30 sentímetra langt. Ég veit ekki um neitt annað dýr sem geta valdið sári af þessari stærð,” sagði Chris Taylor í samtali við BBC.
Ken Collins, læknir frá National Oceanography Centre í Southampton, staðfestir að sárið er sennilega stórt hákarlsbit.
Undanfarin ár hafa æ fleiri sagst hafa séð hvíthákarl við strendur Cornwall í suðvestur-Englandi. Hákarlinn lifir í vatni sem líkist því sem er í Norðursjó, og lifir á gráselum.
Að mati Chris Taylor líkar hárkarlinum ekki sjórinn í Sheringham því hann er of grunnur, en Chris telur að hákarlinn gæti tekið upp stöðuga búsetu í Norðursjó.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























