Tækni & vísindi
| mbl
| 17.1.2008
| 15:51
Skurðlæknar þjálfaðir með Wii
Wii leikjatölvan nýtur mikilla vinsælda AP
Átta skurlæknanemar voru fengnir til að spila tölvuleiki áður en þeir framkvæmdu skurðaðgerð í tölvuhermi, sem notaður er við þjálfun skurðlækna. Nemarnir átta fengu tæplega 50% hærra skor við meðhöndlun skurðækningatækja en aðrir nemar.
Nemarnir léku leikinn Marble Mania, þar sem bolta er stýrt af nákvæmni í gegn um þrívíða þrautabraut, en Kanav Kohel, einn vísindamannanna sem stóðu að rannsókninni segir að væntanlega skipti það máli hvers konar leikir eru spilaðir, varla sé hægt að ná leikni í skurðlækningum með tennisleikjum t.d.
Einkum er talið að ódýr leikjatölva á borð við Wii geti komið að gagni í þróunarlöndum þar sem ekki sé til fjármagn til að kaupa dýr tæki á borð við skurðlækningaherma.
Vísindamennirnir hyggjast kynna rannsóknina formlega á ráðstefnunni Læknavísindi og sýndarveruleiki (Medicine Meets Virtual Reality), sem fram fer í Kaliforníu síðar í mánuðinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
Blum skúffubrautir
Blum Ál skúffubreutir 4 pör eldri gerð
fæst fyrir lítið
S.8976181
netf.: kvis...
Sumarbústaður í vetur, vikur eða mánuðir..
Hlýr og heimilislegur sumarbústaður til leigu. Rólegt og notalegt fyrir t.d. rit...
HREINSA ÞAKRENNUR
Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hot...
Hjólavagnar
Frábærir hjólavagnar. www.hjolavagnar.is 897-9161 Konráð ...
























