Mjaðmir karla þola síður ofþyngd
Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is
Offita eykur líkur á þörfinni fyrir gervilið í mjöðm meðal karla, en ekki meðal kvenna. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var meðal 1.473 Íslendinga sem farið hafa í gerviliðaaðgerðir.
Rannsóknin er hluti af doktorsverkefni Jónasar Franklín, bæklunarskurðlæknis, sem hann vinnur nú að við Háskólann í Lundi í Svíþjóð. „Slitgigt hefur verið talsvert rannsökuð víða um heim og búið að staðfesta að þetta er sjúkdómur sem er tilkominn af fleiri en einum áhættuþætti, en enn er óvíst hver þeirra vegur þyngst,“ segir Jónas. „Það sem okkur langaði að skoða núna var samband slitgigtar við þyngdarstuðul fólks eða BMI (body mass index) og það kom í ljós kynjamunur sem ekki hafði verið sýnt fram á áður.
Mjaðmir karla frekar en hné
Áður hefur verið sýnt fram á að konur í yfirþyngd eiga frekar á hættu að fá slitgigt í hnén en of þungir karlar, og rannsókn Jónasar staðfesti þær niðurstöður. „Fyrst þegar tengslin þar á milli uppgötvuðust fóru menn að velta fyrir sér spurningunni um hænuna og eggið, hvort fólk fengi slitgigt vegna þyngdar eða hvort það þyngdist vegna slitgigtar. En nú hefur verið sýnt fram á orsakasamhengið þar án nokkurs vafa.“Minna hefur verið vitað um tengsl offitu við slitgigt í mjöðmum og skoðanir verið nokkuð skiptar um hvort orsakasamhengi sé yfir höfuð að finna þar á milli. Niðurstöður Jónasar sýna hinsvegar fram á greinileg tengsl offitu og þarfarinnar á gervilið í mjöðm meðal karla. Karlmenn með þyngdarstuðul á milli 25-30 voru 10% líklegri en menn í kjörþyngd til þess að þurfa gervilið í mjöðm, og karlar með þyngdarstuðul yfir 30 voru 70% líklegri. Á hinn bóginn fundust engar merkjanlegar vísbendingar um að of þungar konur væru í aukinn áhættu. Skýringin á þessum mun er ekki ljós.
























