Öreindum skotið af stað
Vísindamenn í CERN, evrópsku rannsóknamiðstöðinni í öreindafræði í Genf, hafa skotið fyrstu öreindunum inn í 27 km göng sem liggja að heimsins stærsta öreindahraðli. Tilgangur hans er að komast nær því að skilja gerð alheimsins.
Verkefnastjórinn, Lyn Evans, gaf skipunina um að skjóta öreindunum af stað.
Nokkrir hraðlar koma við sögu. Fyrst línuhraðall sem skýtur eindunum í lítinn hringhraðal, en þaðan fara þær inn í tvo róteindasamhraðla (PS og SPS á korti), þar sem þær ná enn meiri hraða. Að því loknu er þeim skotið inn í sterkeindahraðal, sem hér er til gamans þýddur sterkeindasteðji, sökum þess að þar rekast öreindirnar á. Í hraðlinum er öreindunum safnað saman í sérstakan geymsluhring og þar hringsóla þær nærri ljóshraða. Hér eru í raun tveir hringir og brautarstefnan hvor á móti annarri og staðirnir, eða steðjarnir, þar sem þær rekast á fjórir (ATLAS, ALICE, LHC-b og CMS).
Gagnaöflunin fer fram við árekstrasvæðin, þar er skoðað hvað kemur út úr árekstrum öreindanna, hvaða eindir verði til við árekstrana og hverjir séu eiginleikar þeirra.
Níu þúsund eðlisfræðingar hafa beðið spenntir eftir því að tilraunin hefjist en þeir munu taka þátt í henni.
Sumir efasemdamenn hafa haldið því fram að tilraunin þýði endalok heimsins.
Bloggað um fréttina
-
Elmar Geir Unnsteinsson Vill einhver gjöra svo vel að endurskrifa þessa frétt þannig ... -
Steinn Hafliðason Ragnarrök -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Múgæsingur -
Agnes Ólöf Thorarensen Væri til í fá þetta...
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























