Karlrembur fá hærri laun

Hærri laun karlrembunnar gætu skýrst af ólíkum gildum í lífinu stækka

Hærri laun karlrembunnar gætu skýrst af ólíkum gildum í lífinu Árni Sæberg

Sálfræðirannsókn sem birt var nýlega í bandaríska tímaritinu Journal of Applied Psychology gefur til kynna að karlmenn sem viðhalda gamaldags viðhorfum um hlutverk kynjanna séu hærra launaðir en jafnréttissinnaðir. Að meðaltali mældist launamunurinn um 8.500 dollarar, þ.e. um 761 þúsund krónur á ári.

Rannsóknin, sem var unnin við Flórídaháskóla, tók til 12.686 manna og kvenna á aldrinum 14-22 ára og var unnin í nánast þrjá áratugi, frá 1979 - 2005. Þáttakendur voru spurðir um viðhorf þeirra til kvenna á vinnumarkaði, hvort hlutverk þeirra væri innan heimilisins og hvort atvinnuþátttaka þeirra væri líkleg til að leiða af sér vanrækslu barna og unglinga.

Niðurstöður sýndu að fleiri karlmenn voru á þeirri skoðun en konur, þótt munurinn þar á milli minnkaði verulega með árunum. Þegar spurt var um laun þátttakenda kom hinsvegar í ljós að þeir karlmenn sem höfðu íhaldsamari viðhorf í jafnréttismálum höfðu marktæk hærri laun en hinir. Hvað konur varðaði snérist staðan hinsvegar við, þær konur sem héldu jafnréttissjónarmiðum á lofti voru hærra launaðar en þær sem voru hlynntar hefðbundnum kynjahlutverkum.

Þónokkrar mögulega skýringar voru gefnar fyrir þessum mun þótt ástæður að baki honum hafi ekki verið rannsakaðar. Ein kenningin er sú að vinnuveitendur séu mögulega líklegri til að veita þeim karlmönnum stöðuhækkun sem þeir vissu að væru eina fyrirvinna heimilisins, vitandi að þörfin væri meiri. Önnur tillaga er sú að þeir karlmenn sem hafi gamaldags hugmyndir um kynjahlutverk hafi einnig önnur gildi almennt en jafnréttissinnaðari karlmenn og leggi meiri áherslu á að komast yfir völd og peninga.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Tækni og vísindi »

Milljón klámneytendur afhjúpaðir

Í gær, 19:46 Yfir milljón notendur klámsíðunnar Youporn fengu þau ótíðindi í dag að hakkarar hefðu gert árás á síðuna til að komast yfir tölvupóstföng þeirra og lykilorð og birt upplýsingarnar á netinu. Meira »
Stofnfrumur.

Stofnfrumur virkuðu á Parkinsons

í gær Apar, sem þjást af Parkinsonssjúkdóminum, hafa sýnt batamerki eftir að japanskir vísindamenn komu stofnfrumum manna fyrir í heila þeirra. Aparnir voru afar illa haldnir, útlimir þeirra hristust og þeir áttu í erfiðleikum með að stjórna líkama sínum. Meira »

Ætlað að hamla gegn ólöglegu efni

Frá undirskrift samningsins í dag
í fyrradag Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og sendiherra Bretlands, Ian Whitting, voru viðstaddir undirritun samkomulags íslenska hátækni- og nýsköpunarfyrirtækisins Videntifier Technologies og breska fyrirtækisins Forensic Pathways í dag. Meira »

Eyrnamergur bannaður en opin sár í lagi

Notendur eru duglegir að benda stjórnendum Facebook á óæskilegt efni.
21.2. Bannað er að birta myndir af þvagi, saur, ælu, sæði og eyrnamerg á Facebook. Leyfilegt er að sýna djúp sár og höfuðkúpubrot svo lengi sem innyfli sjást ekki. Viðmiðunarreglur sem Facebook styðst við um hvað má og hvað ekki hafa verið birtar. Meira »

Ræktuðu upp úr 30.000 ára ávexti

Plantan Silene stenophylla
20.2. Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að rækta plöntur úr vef ávaxta sem talið er að íkornar hafi safnað í sífrera fyrir yfir 30.000 árum. Ávextirnir fundust grafnir í bökkum Kolmya-árinnar í Síberíu, þar sem víðtæk leit hefur jafnframt verið gerð að beinum mammúta. Meira »

Ný gerð reikistjörnu fundin

Ný fjarreikistjarna fannst með hubble-sjónaukanum
21.2. Með Hubbles-sjónauka NASA og ESA hafa stjörnufræðingar fundið nýja gerð reikistjörnu, vatnaveröld umlukta þykkum gufukenndum lofthjúpi. Meira »

Fagnar 50 ára geimferðaafmæli myndskeið

John Glenn minnist hálfrar aldrar geimferðaafmæli
21.2. Bandaríski geimfarinn John Glenn minntist þess í dag að hálf öld er liðin frá því að hann fór þrisvar sinnum umhverfis jörðu á geimfari sínu á fimm klukkustundum og á um 27358.848 kílómetra hraða á klukkustund. Hann var fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að fara umhverfis jörðina á geimfari. Meira »

Ólæs en tísta daglega

Foreldrar leikskólabarna í Frakklandi fylgjast með tísti barna sinna á Twitter
20.2. Frönsk leikskólabörn á Albert-Camus leikskólanum í Talence í suðvesturhluta landsins setja daglega inn færslur á Twitter samskiptavefinn án þess að kunna að lesa né skrifa. Meira »

eBay blæs út í Bretlandi

20.2. Bretar nýta sér í auknum mæli uppboðsvefinn eBay og er svo komið að markaðurinn þar í landi vex hraðast á heimsvísu með tilliti til notkunar uppboðsvefjarins. Meira »

Gönguhraði tengist elliglöpum

Silvio Berlusconi fer hér fremstur í hópi þjóðarleiðtoga í göngutúr á ströndinni í Georgíu.
16.2. Gönguhraði kann að vera vísbending um það hversu líklegt er að fólk fái elliglöp síðar á ævinni, samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að styrkleika grips um miðjan aldur megi tengja við líkurnar á heilablóðfalli. Meira »

Gagarín fær verkefni í Kanada

Mynd tekin árið 2011.
17.2. Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hefur verið ráðið til að hanna og þróa þrenns konar gagnvirka hugbúnaðarlausn fyrir Mannréttindasafn Kanada í Winnipeg. Mannréttindasafnið í Kanada verður mjög tæknilegt og geta gestir safnsins fengið upplýsingar um nánast allt sem viðkemur mannréttindum í heiminum. Meira »

Áhrif bólusetninga rannsökuð

Miðeyrnabólga er algengasta tilefni sýklalyfjanotkunar barna.
14.2. Fyrirhugað er að rannsaka ýmsa þætti í faraldsfræði pneumókokka á Íslandi og áhrif bólusetninga gegn þeim á heilsu manna, sýklalyfjaónæmi, kostnað og útbreiðslu bakteríunnar. Meira »

Bann dregur úr reykingum

13.2. Tóbaksvarnarlög í nokkrum ríkjum Evrópu hafa ýtt undir það að fólk banni reykingar á heimilum sínum og um leið dregið úr reykingum hjá reykingafólki, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt er í tímaritinu Tobacco Control. Meira »

Dönsk börn bryðja vítamín eins og nammi

Vítamíntöflur
13.2. Á ári hverju þurfa a.m.k. 150 dönsk börn læknisaðstoð vegna þess að þau hafa tekið of margar vítamíntöflur. Töflurnar eru litríkar og bragðgóðar og mörg börn borða þær eins og nammi, að sögn Politiken. Í fyrra dó 15 ára stúlka vegna járneitrunar eftir að hafa borðað of margar járntöflur. Meira »

Árás á vefsvæði CIA

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.
10.2. Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Mikilvæg atvinnugrein myndskeið

130212 ut radstefna
13.2. Íslenskum fyrirtækjum sem selja hugbúnaðalausnir fjölgar sífellt og hafa mörg náð mjög góðum árangri bæði hérlendis og erlendis. Nýverið var haldin upplýsingatæknimessa á Grand Hóteli í Reykjavík þar sem fyrirtækjum gafst kostur á að kynna starfsemi sína. Meira »

Íranar komast ekki á netið

12.2. Írönsk stjórnvöld hafa undanfarna daga takmarkað aðgang borgara sinna að netinu svo þeir geta til dæmis ekki komist í tölvupóst í gegnum Gmail, Yahoo og Hotmail. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Norðurljós
10.2. Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »
Finnur.is
Flutningsþrif - Stigagangar - Almenn þrif
Við sérhæfum okkur í flutningsþrifum, losun á rusli, þrif á sameign og almennum ...
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997
MAZDA 323 ÁRGERÐ 1997 TIL SÖLU. BÍLLINN ER Á GÓÐUM NAGLADEKKJUM OG ÞAÐ FYLGJA SU...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI BIFREIÐASTILLINGAR. Faxafeni12 Sími 588 2455. Véla og hjólastillingar - ...
Ideal-Combi rennihurð til sölu
Ál-Tré, Futura línan - Litur Ral 7043. Stærð 2460x2280, opnast frá hægri til vi...
 
Opinn fundur
Fundir - mannfagnaðir
Opinn fundur um umferðar- og skip...
Bækur til sölu

Bækur til sölu Jarðatal á Íslandi 1847 ...
Stúkan fjölnir
Félagsstarf
l FJÖLNIR 6012022119 I...
Stúkan helgafell
Félagsstarf
m HELGAFELL 6012022219 VI...