Afi og amma mikilvæg

Systurnar Katrín og Aníta með afa sínum og ömmu Gunnlaugi …
Systurnar Katrín og Aníta með afa sínum og ömmu Gunnlaugi og Hjördísi Briem mbl.is/Árni Sæberg

Samband ungra barna við afa sína og ömmur hefur mjög hvetjandi áhrif á þroska barna samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var í Ástralíu. Á þetta við um öll samskipti jafnvel þótt þau felist ekki í öðru en því að afar og ömmur lesi fyrir börnin og fari með þau í verslanir. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters.

Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru börn á aldrinum  3 til 19 mánaða fljótari að læra hlutina komi fleiri að umönnun þeirra en foreldrar þeirra en í flestum tilfellum mun þá vera um afa og ömmur þeirra að ræða. „Þessi nýja rannsókn sýnir hversu mikilvægt hlutverk afar og ömmur hafa á þroskaferil barna,” segir Jenny Macklin, ráðherra fjölskyldu, húsnæðis og samfélagsmála.

„Þessi rannsókn sýnir okkur líka hversu mikilvægt það er fyrir þroska barna að við eyðum eins miklum tíma með þeim og mögulegt er á hverjum degi, að við lesum fyrir þau og leikum við þau.  Rúmlega 10.000 fjölskyldur tóku þátt í rannsókninni sem hófst árið 2004.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert