Valin uppgötvun ársins í tímaritinu Nature

Morgunblaðið Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is

 Ritstjórar vísindatímaritsins Nature völdu grein eftir íslenskan vísindamann bestu grein ársins í taugavísindum. Dr. Ragnhildur Káradóttir vinnur áfram að rannsóknum sem hún byggði grein sína á, nú á eigin rannsóknastofu í taugavísindum við University of Cambridge í Englandi.

Ragnhildur er doktor í taugavísindum frá University College London þar sem hún vann að rannsóknum sínum. Hún og samstarfsfólk hennar hefur fengið birtar tvær greinar í vísindatímaritinu Nature, þá fyrri 2005, og sú nýrri birtist í Nature neuroscience í janúar sl.

„Ég hef allan tímann verið að rannsaka svokallaðar stoðfrumur, það er að segja frumur sem samkvæmt kennisetningum taugavísindanna hafa það hlutverk að hjálpa taugafrumum að senda taugaboð. Þessi kenning um heilann varð til á nítjándu öld en málið er ekki svona einfalt því við höfum sýnt fram á það að ein tegund stoðfrumna, að minnsta kosti, getur sent taugaboð og líka tekið við skilaboðum frá taugunum,“ segir Ragnhildur. Hún er nú heima í jólafríi en hún gekk einmitt frá greininni í Nature þegar hún var hér heima um jól og áramót í fyrra.

Ragnhildur telur að það hafi vakið athygli á hennar grein og hjálpað til við val á henni sem uppgötvun ársins að sýnt hafi verið fram á að ein kennisetningin sem taugavísindin hafa verið grundvölluð á sé brostin.

Hjálpar heilanum að laga sig

Í greininni í Nature Neuroscience er sagt frá tveimur tegundum af stoðfrumum sem ekki hefur verið fjallað um áður. „Sú sem er virkari með að fá skilaboð og skynja umhverfi sitt er mjög viðkvæm fyrir súrefnisskorti þegar áfall verður í heilanum, eins og gerist þegar fólk fær heilablóðfall eða þegar börn verða fyrir súrefnisskorti fyrir fæðingu. Ef þessar frumur deyja þá þroskast heilinn ekki eðlilega og hætta er á hreyfihömlun eða öðrum vandamálum. Við vitum enn ekki hvor fruman getur hjálpað heilanum að laga sig og við einbeitum okkur nú að því að skilja það. Ef hægt er að koma í veg fyrir að hún deyi, þá aukast möguleikarnir á að laga heilann,“ segir Ragnhildur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Tækni og vísindi »

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

Í gær, 23:16 Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Í gær, 21:37 Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »

Óhefðbundin fjáröflun fyrir tölvuleik

Framhaldið af Psychonauts er væntanlegt í kjölfar óvenjulegrar fjáröflunar.
í gær Tölvuleikjahönnuður sem gekk illa að fá styrk frá framleiðslufyrirtækjum til að búa til framhald á vinsælan leik sinn hóf fjáröflun á veraldarvefnum. Viðtökurnar fóru fram úr öllum væntingum. Meira »

300 milljónir spjaldtölva árið 2015

Frá UT-messunni í dag.
9.2. Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld. Meira »

Windows 8 frumsýnt 29. febrúar

8.2. Prufuútgáfa af Windows 8 stýrikerfinu verður kynnt á hlaupársdegi, 29. febrúar næstkomandi. Tölvurisinn Microsoft mun kynna kerfið með viðhöfn á hóteli í Barcelona en þar stendur fyrir dyrum risastór tölvuráðstefna. Meira »

Lyf snýr við þróun Alzheimer

Heilbrigt heilahvel (t.h.) og heilahvel úr alzheimersjúklingi.
í gær Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn. Meira »

Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
9.2. Snjallsímar þola illa frost og fimbulkulda. Verulega hægir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sumir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuldann betur. Þetta kom fram í tilraun finnsks tæknitímarits. Meira »

Reyna að laða fleiri að EVE Online

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.
8.2. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.
8.2. Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

7.2. Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

7.2. Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
7.2. Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
7.2. Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
6.2. iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

Íslenskt „app“ slær í gegn

Forritið Air Media Center frá íslenska fyrirtækinu App Dynamic ehf streymir efni milli tölvu og ...
2.2. Nýtt íslenskt snjallsímaforrit, „app“, sem hannað er fyrir iPhone og iPad hefur slegið í gegn meðal notenda um allan heim. Eftir aðeins nokkurra daga sölu hefur forritið, Air Media Center, farið í efstu sæti sölulista í yfir 40 löndum og heldur áfram að klífa listana víða um heim. Meira »
Finnur.is
SPÁNN ÍBÚÐ Í EXSAMPLE Í BARCELONA
Spánn Íbúð í Exsample í Barcelona. Vikuleiga í sumar. starplus.is - starplus.inf...
Springwall King Size rúm úr S&H til sölu
Eins og nýtt ameríkst kírópraktor heilsurúm til sölu. Rúmið er með grind, kassad...
ÞRÝSTIMÆLAR
WIKA þrýstimælar. Sturlaugur Jónsson & Co. Sími 412 3000. www.sturlaugur.is...
Ruggustóll
Til sölu- . Keyptur í Fríðu frænku. Verð 15 þús. Uppl. í s. 867-4183 ...
 
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Aðalfundur sjálfstæðisfélögin í hafnarfirði

Sjálfstæðisfélögin íHafnarfirði og ful...
Tryggingar - vátryggingavernd
Tilboð - útboð
Mynd af auglýsingu ...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...