Halda ekki í við netnotkun barnanna
Mörg börn virðast vera töluvert færari í netnotkun en foreldrarnir, sem ofmeta hversu vel þeir fylgjast með netnotkun barna sinna. Reuters
Breskir foreldrar vanmeta stórkostlega hversu miklum tíma börnin þeirra eyða á internetinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Rannsóknin var framkvæmd af netöryggisfyrirtækinu Symantec og bendir til þess að bresk börn eyði 43,5 klukkustundum á viku á netinu. Foreldrarnir telji hins vegar að meðaltali að börnin eyði 18,8 klukkustundum á netinu í viku hverri. Sagt er frá þessu á fréttavef BBC. Rannsóknin sýnir að 20% foreldra hafi komið að börnum sínum við þá iðju að skoða óviðeigandi efni á vefsíðum.
81% foreldra sögðust jafnframt örugglega vita hvað börnin þeirra væru að skoða á netinu. Hins vegar sögðu 31% aðspurðra barna að foreldrar þeirra vissu ekki hvað þau væru að gera á netinu.
Bloggað um fréttina
-
Lilja Þ. Vonandi skárra á Íslandi -
Ásgrímur Hartmannsson Skilgreiningar, skilgreiningar... -
Gústaf Níelsson Börn taki til hendinni
-
Leita enn að líkum um borð
-
Viktoría fer heim af spítalanum
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
























