Tækni & vísindi
| mbl
| 18.3.2009
| 12:13
Offita álíka hættuleg og reykingar
mbl.is/ÞÖK
Það að vera akfeitur er álíka hættulegt fyrir heilsuna og að reykja. Þeir sem þjást af offitu til langs tíma stytta lífslíkur sínar um áratug, samkvæmt uppgötvun sérfræðinga við Oxford háskóla í Bretlandi. Jafnvel þeir sem eru ekki mikið yfir kjörþyngd eiga á hættu að lifa þremur árum skemur en þeir myndu gera ef þeir væru í kjörþyngd. Niðurstaða sérfræðinganna er birt í nýjasta hefti Lancet.
Niðurstaða vísindamannanna byggir á rannsókn á heilsufari tæplega milljón manns víðsvegar um heiminn. Í Bretlandi telst fjórðungur uppkominna einstaklinga þjást af offitu en miðað er við að líkamsþyngdarstuðull (BMI) sé hærri en 30.
Samkvæmt viðmiði BMI þjáist manneskja, sem er 170 sm að hæð, af offitu ef hún er 90 kg. Hins vegar sé kjörþyngd hennar um 70 kg. Þeir sem eru með líkamsþyngdarstuðulinn 40-50 stytta lífslíkur sínar um 10 ár samkvæmt rannsókninni. Hins vegar eru þeir sem eru með stuðulinn 30-39 að stytta lífslíkur sínar um þrjú ár.Sjá frétt BBC um hættuna sem fylgir offitu
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Fallegar 2-3ja herb. íbúðir fyrir fjölskyldur og ferðalanga. ALLT til ALLS. Rúm ...
1 dekk 640/13 til sölu.
Ónotað dekk 640/13 til sölu á 5þúsund kall. uppl.8691204...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Ónotaðir þakbogar á Honda CRV 2007 til 2012
Er með ónotaða þakboga frá umboðinu fyrir Honda CRV árgerð 2007 til 2012. Fást á...























