Stýra tölvu með heilaorkunni

Tölvuleikjaáhugamenn hafa það leiða orð á sér, verðskuldað eður ei, að vera mjög latir. Ný uppfinning fyrirtækisins Emotiv Systems, sem er til heimilis í Kaliforníu, verður líklega ekki til að kveða niður þessa staðalímynd.

Uppfinningin gerir leikjaspilurum nefnilega kleift að spila tölvuleiki með hugarorkunni einni saman. Í reynd mælir tækið smávægileg rafboð, sem heilinn býr til við hugsun, en tækið getur einnig mælt hreyfingar andlitsvöðva.

Tækið getur numið sterkar, einfaldar hugsanir, eins og ef notandi ímyndar sér bókstafinn „A“. Segja talsmenn fyrirtækisins að þótt það sé hannað fyrir leikjaiðnaðinn verði hægt að nota það á ýmsan annan hátt, eins og við læknisfræðilegar rannsóknir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert