Hinn fullkomni borgarbíll?

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hefur tekið höndum saman við hjólaframleiðandann Segway og búið til hinn fullkomna borgarbíl sem mengar ekkert og kemst í öll bílastæði. Bíllinn var afhjúpaður á bílasýningunni í New York í dag og vakti mikla athygli.

Bíllinn nefnist P.U.M.A. og þar er sameinuð tækni frá fyrirtækjunum tveimur með það að markmiði að auka öryggi í umferðinni, draga úr mengun og umferðarteppum í stórborgum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert