Umdeild netlög samþykkt í Frakklandi
Neðri deild franska þingsins hefur samþykkt umdeilt lagafrumvarp sem ætlað er að taka á ólöglegu niðurhali á netinu. Skv. lögunum fær fólk þrjú tækifæri sé það staðið að því að hala niður efni með ólögmætum hætti. Ef það brýtur af sér í þrjú skipti þá verður netið tekið af þeim í eitt ár.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hefur lýst stuðningi við frumvarpið sem var hafnað í þinginu í síðasta mánuði. Kom það mörgum á óvart.
Frumvarpið, sem er fordæmisgefandi, setur strangar reglur í baráttunni við sjóræningjastarfsemi á netinu. Önnur ríki fylgjast grannt með málinu.
Tónlistariðnaðurinn á heimsvísu hefur kallað eftir því að lög gegn ólöglegu niðurhali verði hert.
Alls samþykktu 296 þingmenn frumvarpið en 233 voru á móti í því í neðri deild franska þingsins. Efri deildin mun greiða atkvæði um það á miðvikudag.
Bloggað um fréttina
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir Enn eitt spor í átt að lögregluríki, franska ríkisstjórnin og ... -
Kristján Bjarni Guðmundsson Sarkozy undanþeginn?
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























