Tækni & vísindi
| mbl
| 16.6.2009
| 7:29
Umræður um stjórnmál bæta lestur
Umræður um stjórnmál og list hafa meiri áhrif á lestrarkunnáttu barna en félagslegur bakgrunnur foreldranna, samkvæmt nýrri danskri könnun. Umræður um fótbolta skila ekki sama árangri.
Börn sem taka þátt í umræðum um stjórnmál, bækur og kvikmyndir við kvöldverðarborðið lesa talsvert betur en börn sem aldrei tala um þessi efni. Þetta sýnir ný könnun frá Anvendt Kommunal Forskning í Danmörku og verða niðurstöður hennar kynntar betur í dag.
Þetta gildir bæði um fjölskyldur þar sem foreldrar eru lítið menntaðir og á heimilum þar sem foreldrarnir eru háskólamenntaðir og listaverk hanga uppi á veggjunum.
Rannsóknin beindist að börnum innflytjenda í tilteknum árgöngum í grunnskóla en ummræður um stjórnmál eru alveg eins mikilvæg á heimilum barna með danskan bakgrunn og hafa eins mikil áhrif á lestrarkunnáttu. Það leiðir eldri könnun sem sömu rannsóknarmenn framkvæmdu.
Ástæða þess að umræðurnar gagnast börnunum á þennan hátt er sú að þá þjálfast börnin í sundurgreinandi og gagnrýnni hugsun. Þau þjálfa ekki sömu færni ef þau tala um fótbolta eða hvernig það gekk í skólanum.
Góður lestur gengur ekki einungis út á það að skilja textann heldur líka að geta séð hann í stærra samhengi. Þeir sem framkvæmdu rannsóknina sögðu því að það gæti hjálpað til með lestrarkunnáttu ef nemendur tækju þátt í umræðum um þessi efni í skólum.

Bloggað um fréttina
-
Morten Lange Áhugaverðar niðurstöður -
Jack Daniel's blog.is að ganga sér til húðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
Sumarhús - fjárfesting
Glæsilegt sumarhús til sölu á suðurlandi. Hefur verið í leigu til erlendra ferða...
Bókhald - ársreikningar - skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
Travel King 585 hjólhýsi til sölu 2004
Kojur öðrumegi og hjónarúm hinum megin Isabella Fortjaldi
Nánari uppslýsingar í...
KLIPPING - dömu og herra - 3.000 kr.
VERÐDÆMI virka daga, stutt hár: Lagning 2.400, blástur 2.800, perm. 5.900, litun...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í skóga- og seljahverfi
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...