Konur veikari fyrir HIV veirunni

Á rannsóknarstofu. stækka

Á rannsóknarstofu. Reuters

Vísindamenn telja að konur séu af náttúrunnar hendi veikari en karlar í baráttunni við HIV veiruna. Það er vel þekkt að HIV vex hraðar í konum heldur en í körlum með svipað magn af veirunni í blóðinu.

Nú hefur bandarískt rannsóknateymi við Massachusetts General Hospital fundið ónæmisfrumu sem bregst ólíkt við milli kynjanna þegar veiran berst í líkamann. Niðurstöðurnar hafa verið birtar í Nature Medicine, og gætu leitt til nýrra leiða til að meðhöndla HIV og hægja á eða stöðva þróunina yfir í alnæmi.

Vísindamennirnir rannsökuðu sérstaklega ónæmisfrumur sem eru meðal þeirra fyrstu í líkamanum til að bera kennsl á og berjast gegn HIV veirunni. Í ljós kom að hærra hlutfall slíkra fruma úr heilbrigðum, ósmituðum konum, urðu virkar þegar þær komust í snertingu við HIV-1 afbrigði veirunnar, heldur en hjá körlum.

Því næst könnuðu þeir hvort hormónamagn kvennanna hefði áhrif og komust að því að konur sem komnar voru af breytingaskeiði sýndu svipuð viðbrögð og karlar.

„Þrátt fyrir að sterkari viðbrögð ónæmiskerfisins geti verið kostur fyrst eftir að smit kemur upp, þar sem veiran fjölgar sér hægar, þá getur stöðug og ítrekuð fjölgun veirunnar og með henni, stöðugt áreiti á ónæmiskerfið, geti leitt til þessarar hraðari þróunar alnæmis sem við höfum séð í konum,“  sagði Dr. Marcus Altfeld við fréttastofu BBC.

Lyf sem stýra þessum viðbrögðum ónæmiskerfisins gætu hjálpað sjúklingum með HIV smit, að sögn Altfeld. Teymið hans hefur þegar hafist handa við að kanna þetta.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Tölvuárás á Íran og Ísrael

Í gær, 20:20 Óþekktur aðili sem kallar sig Flame hefur gerst tölvuárás á nokkur lönd í Miðausturlöndum, m.a. Íran og Ísrael. Flame hefur tekist að safna miklu magni upplýsinga með þessum árásum. Meira »
Venus

Hægt að fylgjast með þvergöngu Venusar

24.5. Senn líður að þvergöngu Venusar, 5.-6. júní, og er undirbúningur í fullum gangi hjá félagsmönnum Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Til að gera sem flestum kleift að skoða sólina á öruggan hátt og sjá Venus á sólskífunni hefur félagið hafið sölu á sérstökum myrkvagleraugum. Meira »

Alþjóðlegt Rúbik-mót á Íslandi

Í gær, 21:18 Stórt alþjóðlegt Rúbik-mót verður haldið á Íslandi í júní. Þar verður keppt í ýmsum greinum tengdum því að leysa Rúbik‘s teninga. Meira »

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.
22.5. Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
22.5. Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
22.5. Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange
22.5. Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
22.5. Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

21.5. Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
21.5. Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
21.5. Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
21.5. Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
21.5. Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »
Finnur.is
Til sölu VW Passat 2,0 árg. 05/2003, station
sjálfskiptur, álfelgur, geislaspilari, ný skoðaður. Sumardekk. Ek. 147 þús. Ve...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
Open ljósaskilti
Mjög áberandi Open ljósaskilti til sölu. Ljósin blikka og fara ekki framhjá nein...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...