Hugbúnaðarframleiðandi ársins í Vestur-Evrópu

Frá afhendingu viðurkenningarinnar. Frá vinstri: Doug Kennedy, aðstoðarforstjóri viðskiptalausna Microsoft, Carsten Wulff, umsjónarmaður samstarfsaðila LS ... stækka

Frá afhendingu viðurkenningarinnar. Frá vinstri: Doug Kennedy, aðstoðarforstjóri viðskiptalausna Microsoft, Carsten Wulff, umsjónarmaður samstarfsaðila LS Retail, Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LS Retail, Cesar Cernuda, einn aðalstjórnenda Microsoft International, og Sveinn Áki Lúðvíksson, sölustjóri LS Retail.

Íslenska upplýsingatæknifyrirtækið LS Retail var útnefnt hugbúnaðarframleiðandi ársins í Vestur-Evrópu á Microsoft World Wide Partner ráðstefnunni í New Orleans í liðinni viku. LS Retail komst einnig annað árið í röð í hinn svokallaða „Inner circle“ Microsoft-samstarfsaðila í viðskiptalausnum, en einungis allra bestu samstarfsaðilar Microsoft á alþjóðavísu fá inngöngu í þann hóp eða um 1%.
 
Í ræðu sinni við útnefninguna sagði Cesar Cernuda, einn af aðalstjórnendum Microsoft International, að LS Retail væri frábært dæmi um farsælan samstarfsaðila sem einbeitti sér að ákveðnum geira og hefði náð að bæta við sig yfir 200 viðskiptavinum í smásölugeiranum á síðastliðnu ári. Fyrirtækið hefði þróað lausnir fyrir smásölugeirann í Microsoft Dynamics NAV og Microsoft Dynamics AX og nú væru lausnir þess uppsettar í 132 löndum og þýddar á 33 tungumál.
 
Meðal lykilatriða sem horft var til við útnefninguna voru framúrskarandi árangur í sölu, afbragðsgóð sérfræðiþekking á vörum og þjónustu Microsoft Dynamics og mikil ánægja viðskiptavina.
 
„Í samstarfsneti Microsoft eru yfir eitt þúsund hugbúnaðarframleiðendur í Evrópu og um allan heim. LS Retail tilheyrir þessum hópi og við fögnum því mjög að Microsoft skuli velja fyrirtækið sem hugbúnaðarframleiðanda ársins. Viðurkenningin er árangur af þrotlausri vinnu og ríkri áherslu á vörugæði. Hluta af velgengni LS Retail má einnig rekja til öflugs samstarfsaðilanets Microsoft en fyrirtækið hefur aflað 216 nýrra viðskiptavina á síðustu tólf mánuðum. LS Retail hefur sett sér mjög metnaðarfull markmið fyrir næstu átján mánuði og hyggst styrkja enn stöðu sína sem leiðandi söluaðili á viðskiptalausnum frá Microsoft Dynamics,“ segir Gunnar Björn Gunnarsson, framkvæmdastjóri LS Retail.
 
„Þessi árangur LS Retail er athygliverður sér í lagi ef litið er á að víðast hver er samdráttur í heiminum. Fyrirtækið skarar framúr á sínu sérsviði og ljóst að viðskiptavinir velja lausn þeirra sem svar við kröfu um hagræðingu í rekstri almennt. Verðlaunin eru eftirsóknarverð og árangurinn einungis á valdi hugbúnaðarframleiðenda sem eru á heimsmælikvarða. Það er sérstaklega ánægjulegt að íslenskt fyrirtæki skuli ná svona afburða árangri,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Tölvuárás á Íran og Ísrael

Í gær, 20:20 Óþekktur aðili sem kallar sig Flame hefur gerst tölvuárás á nokkur lönd í Miðausturlöndum, m.a. Íran og Ísrael. Flame hefur tekist að safna miklu magni upplýsinga með þessum árásum. Meira »
Venus

Hægt að fylgjast með þvergöngu Venusar

24.5. Senn líður að þvergöngu Venusar, 5.-6. júní, og er undirbúningur í fullum gangi hjá félagsmönnum Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Til að gera sem flestum kleift að skoða sólina á öruggan hátt og sjá Venus á sólskífunni hefur félagið hafið sölu á sérstökum myrkvagleraugum. Meira »

Alþjóðlegt Rúbik-mót á Íslandi

Í gær, 21:18 Stórt alþjóðlegt Rúbik-mót verður haldið á Íslandi í júní. Þar verður keppt í ýmsum greinum tengdum því að leysa Rúbik‘s teninga. Meira »

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.
22.5. Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
22.5. Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
22.5. Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange
22.5. Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
22.5. Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

21.5. Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
21.5. Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
21.5. Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
21.5. Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
21.5. Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »
Finnur.is
Framstuðari á PT.Cruisher 2005-8
Til sölu NÝR framstuðari á þennan fallega bíl. Fullt verð hér er 135 þús. Bíljö...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj., 3-5 svefnherb, 1-...
Hjólavagnar
Glæsilegir hjólavagnar. Sterkir og liprir. Lág verð, heildsala - lagersala. www...
UKELELE
Ukulele í úrvali. Verð frá 5.900. Gítarinn ehf., Stórhöfða 27. S. 552 2125. www....
 
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...