Tunglið kannað með Google
Í tilefni af 40 ára afmæli fyrsta fótsporsins á tunglinu hefur Google nú bætt við sýndar-skoðunarferð um tunglið á Google Earth-kortið sitt, sem fæst ókeypis á internetinu.
Nú er því hægt að gaumgæfa plánetuna jörð, Mars, himininn og tunglið á heimasíðunni earth.google.com. Til þess þarf forritið Google Earth 5.0 sem fæst frítt á netinu.
Buzz Aldrin, geimfari úr Appollo 11-leiðangrinum og annar maðurinn til að stíga fæti á tunglið, var viðstaddur í Washington þegar Google hleypti forritinu af stokkunum.
„Fyrir fjörutíu árum gengu tveir menn um tunglið,“ sagði verkefnisstjórinn Michael Weiss-Malik. „Nú geta allir fylgt í fótspor þeirra. Við gefum mörg hundruð milljónum manna möguleika á að endurlifa lendinguna á tunglinu.“
Aldrin og geimfarinn Jack Schmitt veita leiðsögn um eyðilendur tunglsins í forritinu.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























