Grunaður iPhone þjófur framdi sjálfsvíg
Ungur Kínverji, sem er grunaður um að hafa stolið frumgerð að fjórðu kynslóð iPhone farsímans, hefur framið sjálfsvíg. Maðurinn vann hjá Foxconn, sem er eitt af stærstu framleiðslufyrirtækjum tæknirisans Apple.
Fyrirtækið, sem er staðsett í Taívan, hóf rannsókn í kjölfar fullyrðinga frá fyrrum samnemendum mannsins þess efnis að öryggisverðir hefðu gengið í skrokk á honum.
Talsmaður Apple segir að menn séu sorgmæddir yfir því að maðurinn hafi fyrirfarið sér. Beðið sé eftir niðurstöðum rannsóknarinnar.
Sun Danyoung var 25 ára. Hann stökk fram af 12 hæða húsi í síðustu viku. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins.
Hann vann hjá Foxconn í borginni Shenzhen og bar ábyrgð á því að flytja 16 iPhone-frumgerðir til Apple.
Aðeins 15 komust á leiðarenda. Sun greindi frá því og í framhaldinu hóf fyrirtækið rannsókn. Hann framdi sjálfsvíg þremur dögum síðar.
Fyrrum samnemendur Sun hafa sagt í kínverskum fjölmiðlum að á meðan rannsókninni stóð hafi hann verið barinn, leitað hafi verið á heimili hans og hann læstur einn inni í herbergi.
Þeir segja að hann hefði lýst lífsreynslunni á spjallsíðu á netinu og sagt að hann hefði verið niðurlægður.
Foxconn hefur vikið yfirmanni öryggismála frá störfum og rannsakar þessar fullyrðingar.
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 10. júní 2010, Erlent Brotist inn í iPad
- Sunnudagur, 15. ágúst 2010, Erlent Meintur morðingi framdi sjálfsvíg
- Mánudagur, 11. maí 2009, Erlent Grímuklæddur maður réðst inn í skóla í Þýskalandi
- Miðvikudagur, 15. apríl 2009, Erlent Framdi sjálfsvíg eftir að hafa myrt fjölskyldu sína
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Erlent 17 látnir eftir skotárás
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























