Tækni & vísindi
| mbl
| 22.7.2009
| 7:03
Milljónir fylgdust með sólmyrkva
mbl.is
Stjörnuáhugamenn og vísindamenn ferðuðust víða að til þess að fylgjast með myrkvanum sem stóð yfir í sex mínútur og 39 sekúndur þegar dimmast var. Hann sást fyrst í Austur-Indlandi. Síðan fór hann yfir Indland, Nepal, Búrma, Bangladesh, Bhutan, Kína, Japan og Kyrrahafið. Síðast sást hann frá eyju í Kyrrahafi, Nikumaroro eyju, klukkan 4:18.
Sólmyrkvinn sást að hluta í öðrum löndum Asíu.
Á Indlandi söfnuðust milljónir saman til þess að horfa á myrkvann. Skýjað var á sumum stöðum, líka yfir indverska þorpinu Taregna, sem var í miðju myrkvans. Margir fóru því vonsviknir heim aftur.
Eitthvað var um að fólk keypti sér far með flugi sem farið var sérstaklega í þeim tilgangi að fylgjast með myrkvanum.
Ekki tóku allir sólmyrkvanum fagnandi. Í Nepal voru allir skólar lokaðir til þess að vernda nemendur gegn slæmum áhrifum hans. Sumir foreldrar í Delhi höfðu börn sín heima þar sem sumir Hindúar trúa því að það sé slæmt að útbúa mat meðan að á sólmyrkva stendur og ófrískum konum var ráðlagt að halda sig heima þar sem fóstrið gæti orðið fyrir skaða.
Í Peking sást sólmyrkvinn illa vegna mengunar.
Síðast varð alger sólmyrkvi í ágúst 2008, hann stóð yfir í 2 minútur og 27 sekúndur. Sá næsti verður þann 11. júlí 2010 og mun einungis sjást frá fáum stöðum, á suðurhluta Jarðar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Land Cruiser 120 GX 33" 2006 ekinn 86 þ.
100% þjónusta, slatti af aukahlutum, 2 eigendur.
Toppeintak!
Ásett 4.990, tilb...
COSTA BRAVA PLAYA DE ARO
Costa Brava - Playa de Aro Gullna ströndin, fyrir fjölskylduna i sumarleyfið...
SPÁNN ÍBÚÐ Í EXSAMPLE Í BARCELONA
Spánn Íbúð í Exsample í Barcelona. Vikuleiga í sumar. starplus.is - starplus.inf...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss Staðsett 20 mín...
Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs
Háskólakennsla
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasvið...
Háskólakennsla
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasvið...
























