Kvikmyndaverin stefna Pirate Bay
Kvikmyndaver í Hollywood hafa stefnt hinu vinsæla sænska skrárskiptanetsvæði, Pirate Bay, fyrir hafa enn á boðstólum höfundaréttarvarið efni eftir að stofnendur svæðisins hlutu dóma fyrir brot gegn lögum á því sviði.
„Við höfum lagt fram stefnu gegn Pirate Bay forsprökkunum þar sem þeir hafa ekki hætt athæfi sínu jafnvel eftir að hafa hlotið fangelsisdóma,“ segir hinn sænski lögmaður kvikmyndaveranna, Monique Wadsted.
Kvikmyndaverin Columbia, Disney, Paramount o.fl. krefjast þess að stofnendum Pirate Bay - Fredrik Neij. Gottfrid Svartholm Warg, Carl Lundström og Peter Sunde verði meinað „að halda áfram athæfi sínu“.
Pirate Bay sem var stofnað 2003, gerir mögulegt að fara á svig við höfundarréttargjöld og skiptast á tónlistar-, kvikmynda- og tölvuleikjaskrám.
Stefnunni er einnig beint að netfyrirtækinu Black Internet og er einskorðuð við um 100 sjónvarpsþætti og kvikmyndir, að sögn Wadsted, sem segir að verði hinir stefndu fundnir sekir muni þeir verða sektaðir.
Í aprílmánuði sl. var mennirnir á bak við Pirate Bay fundnir sekir fyrir brot á lögum um höfundarrétt og dæmdir í eins árs fangelsi hver um sig. Þeir voru jafnframt dæmdir til að greiða rétthöfunum um 30 milljónir sænskra króna, liðlega hálfan milljarð ísl. króna, í skaðabætur.
Fjórmenningarnir hafa áfrýjað dómnum en ekki liggur fyrir hvenær málið verður tekið fyrir.
Í júní sl. var frá því greint að sænski tölvuleikjaframleiðandinn, Global Gaming Factory, hygðist festa kaup á netsvæðinu fyrir um 60 milljónir sænskra króna, en fyrirtækið ætlar að byrja að greiða höfundarréttargjöld um leið og samningsgerðinni er lokið, hugsanlega strax í næsta mánuði.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























