Ljósabekkir krabbameinsvaldar
Ljósabekkir og ljósalampar auka örugglega líkur á húðkrabbameini, að mati alþjóðlegra sérfræðinga. Áður töldu alþjóðleg samtök sem vinna að krabbameinsrannsóknum (IARC) að mögulega gætu þessir ljósgjafar valdið krabbameini í mönnum, samkvæmt fréttavef BBC.
Breytt afstaða International Agency for Research on Cancer (IARC) kemur fram í tímaritinu Lancet Oncology. Þeir sem barist hafa gegn ljósalömpum og ljósabekjum telja að þessi niðurstaða auki þrýsting á hertar reglur um notkun ljósabekkja.
Samtökin Sunbed Association segja að engin tengsl hafi verið sönnuð á milli skynsamlegrar notkunar ljósabekkja og húðkrabbameins.
IARC er nefnd sérfræðinga sem veitir Alþjóðaheilbrigðismálatofnuninni (WHO) ráðgjöf. Hún komst að ofangreindri niðurstöðu eftir að hafa farið yfir rannsóknir með þeirri niðurstöðu að hættan á að fá melanoma - hættulegustu tegund húðkrabbameins - hafi verið 75% meri hjá fólki sem fór að nota ljósabekki reglulega áður en það náði þrítugsaldri.
Þar að auki hafa margar rannsóknir sýnt fram á aukna hættu á melanoma í augum við notkun ljósabekkja.
Samtökin Cancer Research UK vöruðu fyrr á þessu ári við því að mikil ljósabekkjanotkun ætti stóran þátt í því að fjöldi Breta sem greindust með melanoma fór í fyrsta skipti yfir 10 þúsund á einu ári.
Tíðni þessarar tegundar krabbameins hefur meira en fjórfaldast á undanförnum þrjátíu árum.
Stjórnvöld í Englandi íhuga að banna fólki yngra en 18 ára að nota ljósabekki. Slíkt bann hefur þegar gengið í gildi í Skotlandi.
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 2. mars 2009, Erlent Og hvaða hárlit á barnið að hafa?
- Mánudagur, 8. júní 2009, Erlent Óttast mengað vatn
- Mánudagur, 5. júlí 2010, Erlent Megrahi gæti lifað í 10 ár til viðbótar
- Laugardagur, 18. apríl 2009, Erlent Undirbjuggu hryðjuverk
- Miðvikudagur, 14. júlí 2010, Erlent Sykursýkilyf verði áfram á markaði
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























