Ráðist á alla til að ná einum
Nú hefur fengist staðfest að stór og skipulögð árás á vefsíður á borð við Facebook og Google hafi beinst gegn einum einstaklingi. Talsmenn Facebook segja í samtali við breska ríkisútvarpið að árásunum hafi verið beint að bloggara sem kallast Cyxymu, og er stuðningsmaður Georgíu.
Örbloggsíðan Twitter lá t.d. niðri í um tvo tíma vegna árásarinnar og þá truflaði hún einnig starfsemi Facebook.
Talsmenn Google segja að þeim hafi tekist að verja síður fyrirtækisins og nú vinni þeir með öðrum fyrirtækjum að rannsókn málsins.
„Svo virðist sem að árásinni hafi verið beint gegn einstaklingi sem tengist mörgum vefsíðum, fremur en vefsíðunum sjálfum,“ segir talsmaður Facebook.
„Nánar til tekið þá er einstaklingurinn bloggari og aðgerðasinni og botnet var notað til að kalla upp vefsíðurnar hans á svo miklum hraða að það hafði áhrif aðra notendur,“ segir hann.
Botnet eru tölvunet sem tölvuþrjótar ráða yfir.
Tölvurnar voru notaðar til að gera svokallaða DOS-árás (e. denial of service) í gær.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























