Fjölbreytileika ógnað
Fljúgandi froskur, minnsti hjörturinn og fyrsta nýja apategundin sem fundist hefur í yfir eina öld eru meðal 350 nýrra tegunda sem fundust í austurhluta Himalajafjalla á liðnum áratug að sögn alþjóðlegu dýraverndunarsamtakanna WWF.
Í nýrri skýrslu samtakanna kemur hinsvegar fram að vegna hlýnunar jarðar, eyðingu skóga, ofbeitingu, veiða í leyfisleysi og viðskipta með villt dýr sé eitt líffræðilega fjölbreyttasta svæði jarðarinnar nú í hættu.
„Á liðinni hálfri öld hefur þetta svæði Suður Asíu þolað mikið áreiti sem hefur fylgt mannfjölgunar og aukinni vörueftirspurn,“ segir m.a. í skýrslu samtakanna „Austur-Himalaja - Þar sem heimarnir mætast“. „Aðeins 25% kjörlendis svæðisins eru ósnortin. Fyrri einstakar tegundir Austur-Himalaja þýðir það að í dag eru 163 þeirra í útrýmingarhættu á heimsvísu,“ segir í skýrslunni.
Hér má sjá heimasíðu WWF, skoða skýrsluna og umfjöllun um þær tegundir sem hafa fundist í Austur-Himalajafjöllum.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























