Nýr leikur frá CCP

Dust. stækka

Dust. mbl.is

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP greindi í dag frá nýjum leik, sem fyrirtækið vinnur nú að, en leikurinn mun bera heitið Dust 514. Forstjóri CCP, Hilmar Veigar Pétursson, kynnti leikinn á tölvuleikjaráðstefnunni GDC Europe í Köln fyrir skömmu.

Ólíkt EVE Online leiknum, sem spilaður er á hefðbundnar borðtölvur, verður Dust 514 spilaður á leikjatölvur. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða leikjatölvur munu geta spilað leikinn, en helstu tölvur þessarar tegundar eru Xbox 360 og Playstation 3. Verður þetta í fyrsta sinn sem heimur EVE opnast fyrir leikjatölvuspilara.

Fyrstu persónu skotleikur

Dust 514 verður svokallaður fyrstu persónu skotleikur (FPS), þar sem spilarar munu berjast sín í millum með skotvopnum, brynvögnum og flugvélum. Munu spilarar geta breytt þessum vopnum og hergögnum sjálfir. Þá verður lög meiri áhersla á herkænsku en gert er í mörgum slíkum leikjum. Blandast því við ákveðnir þættir úr leikjum, sem kallast rauntíma herkænsku (RTS) leikir.

Það sem gera mun Dust 514 frábrugðinn öðrum FPS leikjum er að leikurinn mun tengjast beint við EVE Online, en slík tenging milli leikja hefur ekki verið reynd áður með þessum hætti. Spilarar í Dust munu berjast á plánetum sem eru í hinum stóra heimi EVE. Líkt og í EVE er ætlunin sú að hegðun og háttsemi spilara hafi áhrif á heim leiksins. Heimurinn verður það sem kallast á leikjamáli„viðvarandi heimur“, sem ekki hverfur þótt spilari slökkvi á tölvunni.

Þá er hugsun CCP að leikirnir tveir, EVE og Dust, geti haft áhrif hvor á annan, þ.e. að hegðun spilara í Dust geti haft áhrif á EVE og öfugt. Ekki er þó enn komið á fast hvernig þessi gagnkvæmu áhrif muni virka.

Merki Dust 514.

Merki Dust 514.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

Í gær, 23:16 Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Í gær, 21:37 Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »

Óhefðbundin fjáröflun fyrir tölvuleik

Framhaldið af Psychonauts er væntanlegt í kjölfar óvenjulegrar fjáröflunar.
Í gær, 13:22 Tölvuleikjahönnuður sem gekk illa að fá styrk frá framleiðslufyrirtækjum til að búa til framhald á vinsælan leik sinn hóf fjáröflun á veraldarvefnum. Viðtökurnar fóru fram úr öllum væntingum. Meira »

300 milljónir spjaldtölva árið 2015

Frá UT-messunni í dag.
í fyrradag Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld. Meira »

Windows 8 frumsýnt 29. febrúar

8.2. Prufuútgáfa af Windows 8 stýrikerfinu verður kynnt á hlaupársdegi, 29. febrúar næstkomandi. Tölvurisinn Microsoft mun kynna kerfið með viðhöfn á hóteli í Barcelona en þar stendur fyrir dyrum risastór tölvuráðstefna. Meira »

Lyf snýr við þróun Alzheimer

Heilbrigt heilahvel (t.h.) og heilahvel úr alzheimersjúklingi.
Í gær, 12:58 Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn. Meira »

Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
í fyrradag Snjallsímar þola illa frost og fimbulkulda. Verulega hægir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sumir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuldann betur. Þetta kom fram í tilraun finnsks tæknitímarits. Meira »

Reyna að laða fleiri að EVE Online

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.
8.2. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.
8.2. Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

7.2. Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

7.2. Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
7.2. Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
7.2. Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
6.2. iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

Íslenskt „app“ slær í gegn

Forritið Air Media Center frá íslenska fyrirtækinu App Dynamic ehf streymir efni milli tölvu og ...
2.2. Nýtt íslenskt snjallsímaforrit, „app“, sem hannað er fyrir iPhone og iPad hefur slegið í gegn meðal notenda um allan heim. Eftir aðeins nokkurra daga sölu hefur forritið, Air Media Center, farið í efstu sæti sölulista í yfir 40 löndum og heldur áfram að klífa listana víða um heim. Meira »
Finnur.is
SENDIBÍLL sími: 5 61 61 16
Heimkeyrsla úr búðum / verslun eða skutl milli húsa sækja og senda á hfbsv. eða ...
Mazda BT50 til sölu
Mazda BT50 Double Cap dísel, nýskr. 10/2007 ekinn aðeins 56.000 km. Topp þjónust...
Saab 95 2.3 turbo á sumardekkjum nú er færi fyrir hann
árg 1999 ekinn 131000 170 hö sjálfskiptur, leðuráklæði, nýr vatnslás, nýbúin í o...
Gisting á höfuðborgarsvæðinu
Erum með laus herbergi. Tilboðsverð. Sjá myndir wwww.lily.is. Gistiheimilið Li...
 
Yfirkokkur
Hótel- og veitingarekstur
Yfirkokkur Fjalakötturinn Restaura...
1 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Félags sj...
Til sölu bátur
Til sölu
Til sölu Til sölu bátur ...