Alhliða hleðslutæki fær grænt ljós

Svo margir símar, en í framtíðinni verður bara eitt hleðslutæki.
Svo margir símar, en í framtíðinni verður bara eitt hleðslutæki. Reuters

Nýtt hleðslutæki, sem á að virka fyrir allar gerðir farsíma, hefur fengið grænt ljós frá Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), sem heyrir undir Sameinuðu þjóðirnar.

GSMA, sem eru regnhlífasamtök farsímaiðnaðarins, telja að á hverju verði um 51.000 hleðslutæki úrelt. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins.

Flest hleðslutæki í dag eru hönnuð fyrir ákveðna tegund farsíma, sem þýðir að þegar fólk kaupir sér nýjan síma þá fylgir nýtt hleðslutæki með. Það sé í flestum tilvikum hannað fyrir viðkomandi síma. Gamla hleðslutækið fer því á haugana, eða vonandi á næstu endurvinnslustöð.

GSMA spáir því að nýju hleðslutækið muni draga úr losun gróðurhúslofttegunda sem samsvarar 13,6 milljón tonnum á ársgrundvelli.

„Þetta er stórt skref í því að draga úr áhrifum farsímahleðslna á umhverfi,“ segir Malcolm Johnson, yfirmaður hjá ITU.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert