Best að sýna ást og aga í uppeldinu

Foreldrar eiga að sýna börnum sínum ást en einnig aga. stækka

Foreldrar eiga að sýna börnum sínum ást en einnig aga. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Börn sem alast upp við ást og aga farnast best í lífinu. Greinilegur munur er á börnum sem eiga ástríka og ákveðna foreldra og börnum sem alast upp við mikið frjálsræði eða afskiptaleysi. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem byggir upplýsingum frá 9.000 breskum fjölskyldum.

Sagt er frá rannsóknunum á vef BBC. Að mati skýrsluhöfunda eru börn sem alast upp við ást og aga tvöfalt líklegri til að sýna félagslegan þroska og jákvæð persónueinkenni en börn sem búa við annars konar uppeldi.

Haft er eftir einum skýrsluhöfunda að traust, hlýja og agi þar sem foreldrar eru samkvæmir sjálfum sér sé það sem skipti máli.

Börn sem bjuggu við ástúð og aga í uppeldi voru líklegri til að þróa með sér hæfileikar eins og einbeitingu, sjálfstjórn og samúð. Þessir hæfileikar eru allir taldir ráða miklu um hvernig börnum farnast síðar í lífinu, en persónueinkenni af þessu tagi þróar einstaklingurinn með sér frá unga aldri.

Í skýrslunni kom fram að börn frá ríkum heimilum voru tvisvar sinnum líklegri að þróa með sér þessa jákvæðu kosti en börn frá fátækum heimilum. Sama á við með börn sem eiga gifta foreldra í samanburði við börn sem alast upp hjá einstæðu foreldri eða stjúpforeldrum.

En þegar eingöngu var litið til þess hvaða aðferðum foreldrar beittu í uppeldi sínu hvarf þessi munur. Þá skipti ekki máli hvort börn komu frá ríkum eða fátækum heimilum eða hvort foreldrarnir bjuggu saman eða ekki.

Skýrslan sýnir að áhrif frá foreldrum er sá þáttur sem ræður mestu um velferð barnanna. Aðrir þættir sem skipta máli þegar reynt er að meta hvernig börnum farnast er menntun foreldra og brjóstagjöf. Niðurstaða skýrslunnar er því sú að öllum máli skipti hversu góðir foreldrar eru í uppeldishlutverki sínu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Íranar komast ekki á netið

18:05 Írönsk stjórnvöld hafa undanfarna daga takmarkað aðgang borgara sinna að netinu svo þeir geta til dæmis ekki komist í tölvupóst í gegnum Gmail, Yahoo og Hotmail. Meira »
Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

í fyrradag Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Norðurljós
í fyrradag Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »

Lyf snýr við þróun Alzheimer

Heilbrigt heilahvel (t.h.) og heilahvel úr alzheimersjúklingi.
10.2. Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn. Meira »

Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
9.2. Snjallsímar þola illa frost og fimbulkulda. Verulega hægir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sumir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuldann betur. Þetta kom fram í tilraun finnsks tæknitímarits. Meira »

Óhefðbundin fjáröflun fyrir tölvuleik

Framhaldið af Psychonauts er væntanlegt í kjölfar óvenjulegrar fjáröflunar.
10.2. Tölvuleikjahönnuður sem gekk illa að fá styrk frá framleiðslufyrirtækjum til að búa til framhald á vinsælan leik sinn hóf fjáröflun á veraldarvefnum. Viðtökurnar fóru fram úr öllum væntingum. Meira »

300 milljónir spjaldtölva árið 2015

Frá UT-messunni í dag.
9.2. Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld. Meira »

Windows 8 frumsýnt 29. febrúar

8.2. Prufuútgáfa af Windows 8 stýrikerfinu verður kynnt á hlaupársdegi, 29. febrúar næstkomandi. Tölvurisinn Microsoft mun kynna kerfið með viðhöfn á hóteli í Barcelona en þar stendur fyrir dyrum risastór tölvuráðstefna. Meira »

Reyna að laða fleiri að EVE Online

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.
8.2. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

7.2. Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.
8.2. Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

7.2. Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
7.2. Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
6.2. iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
7.2. Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »
Finnur.is
Heimsendingar www.keyrsla.is
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Fyrirtækjaþjónusta - öll almenn sendibílaþjó...
D.A.S. og ARX vörur hjá www.nlh.is
DAS Audio er topp lausn í hljóðkerfum fyrir tonleika, íþróttavelli og "Live" PA....
Klassískt og vandað sófasett
Afar vandað klassískr sófasett, rauðbrúnt. Sófi og tveir stóla til sölu. Vel með...
125 cc Dirt Bike
Til sölu lítið notað X-motos DirtBike árg. 2008. Tilboð óskast ! Baldur 848-6972...
 
Verkefnastjóri vindorku
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Þerapisti
Sérfræðistörf
BARNAVERNDARSTOFA STARF ÞERAPISTA Í ...
Móttökuritari
Skrifstofustörf
...
Sýslumaðurinn í keflavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....