Fjölskrúðugt sjávarlíf í Eyjafirði
Fjölskrúðugt sjávardýralíf þrífst nú við við gömlu síldarbræðsluna við Hjalteyri í Eyjafirði. Þar fundust nýlega leifar af krana, sem sökk í óveðri árið 1980. Kraninn er á frá 3 til 11 metra dýpi og veitir fjölda dýrategunda skjól.
Gísli A. Guðmundsson, kafaði við Hjalteyri í gærkvöldi ásamt Erlendi Guðmundssyni, félaga sínum, í næturköfun við Hjalteyri. Segir hann að það hafi verið sérstök upplifun því ljósáta í ómældu magni sótti fast í ljós kafaranna og varð til þess að þorskseyði, marhnútar og krabbar fóru einnig að sækja í ljósin og stungu sér í mergðina.
„Þó var eitt sem varpaði skugga á köfunina en það var marhnútur með afskorinn aftursporð; enn eitt dæmið um grimmd og hugsunarleysi mannskepnunar þessa daganna. Marhnúturinn lét fötlun sína þó ekki á sig fá og gleypti ljósátuna í sig af mikilli græðgi," skrifar Gísli í pósti til mbl.is.
Myndasyrpa: Fjölskrúðugt sjávarlíf við Hjalteyri
Fjölskrúðugt sjávardýralíf þrífst nú við við gömlu síldarbræðsluna við Hjalteyri í Eyjafirði. Þar fundust nýlega leifar af krana, sem sökk í óveðri árið 1980. Kraninn er á um 11 metra dýpi og veitir fjölda dýrategunda skjól. Gísli A. Guðmundsson, fór ásamt félaga sínum í næturköfun við Hjalteyri. Segir hann að það hafi verið sérstök upplifun því ljósáta í ómældu magni sótti fast í ljós kafaranna og varð til þess að þorskseyði, marhnútar og krabbar fóru einnig að sækja í ljósin og stungu sér í mergðina.
Birtingardagur: Miðvikudaginn, 13. janúar 2010
Bloggað um fréttina
-
Gísli Foster Hjartarson Skemmtilegt -
Börkur Hrólfsson ,,Afskorinn aftursporð"??
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup























