Ja.is valinn besti vefurinn
Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir í dag. Katrín Júlísdóttir iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Hugmyndahúsi háskólanna.
Voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í tíu flokkum. Alls bárust yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í níunda skipti sem Íslensku vefverðlaunin eru haldin, segir í tilkynningu.
Aðrir vefir sem fengu viðurkenningu voru:
Besta viðmót og hönnun – nikitaclothing.com
Frumlegasti – hugmyndaraduneytid.is
Besti sölu- og kynningarvefurinn (yfir 50 starfsmenn) – play.eveonline.com
Besti sölu- og kynningarvefurinn (undir 50 starfsmenn) – nikitaclothing.com
Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn – ja.is
Besti afþreyingar- og fréttavefurinn – skjarinn.is
Besta markaðsherferðin – Landsbankinn/Náman
Besta blog/efnistök/myndefni – gummisig.com
Besti hand-smátækja vefurinn – m.ja.is
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Enn snjóar í Evrópu
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin
-
Klám í Köben?
-
Norðurljósin utan úr geimnum
























