Leita lækningar við hnetuofnæmi
Margar tegundir af hnetum eru til. Teymi lækna leitar nú lækningar við jarðhnetuofnæmi. Ofnæmið getur reynst lífshættulegt. Kristinn Ingvarsson
Læknar í Cambridge í Englandi telja að lækning við jarðhnetuofnæmi kunni að finnast fljótlega, að sögn fréttavefjar BBC. Umfangsmestu tilraunir til þessa varðandi meðferð á jarðhnetuofnæmi felast í því að gefa þeim þjást af ofnæminu smáa skammta daglega og byggja upp þol gegn ofnæmisvaldinum.
Sérfræðingateymi sem kennt er við Addenbrookes ætlar að gefa 104 breskum börnum, 7-17 ára, dagvaxandi skammta af jarðhnetudufti sem samsvara allt að fimm jarðhnetum á dag. Fyrsti skammturinn verður um eitt milligramm og verður duftinu blandað í jógúrt.
Fyrri rannsókn sýndi fram á að af 23 einstaklingum með jarðhnetu ofnæmi gátu 20 farið að borða meira en 30 jarðhnetur á dag án þess að þeim yrði meint af.
Tilraunin sem nú er hafin mun kosta um eina milljón sterlingspunda og standa í þrjú ár. Talið er að hún geti leitt til þess að lækning finnist við ofnæminu.
Um eitt af hverjum fimmtíu ungmennum í Bretlandi þjáist af jarðhnetuofnæmi. Það getur valdið öndunarörðugleikum, kláða og í svæsnustu tilfellum bólguviðbrögðum sem geta reynst banvæn.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























