Óvirkar PlayStation tölvur
Sony fyrirtækið hvetur eigendur eldri gerða PlayStation 3 til að nota ekki leikjatölvurnar fyrr en fundin hefur verið lausn á galla í klukku tölvunnar. Gallinn hefur einungis áhrif á eldri gerðir PS3 en ekki nýrri og þynnri gerð leikjatölvunnar. Gallinn tengist hlaupársdegi.
Patrick Seybold, talsmaður Sony, sagði í bloggi á vefsíðu um leikjatölvuna að sumir hafi ekki getað tengst PlayStation netinu í dag. Hann sagði þennan galla einungis að finna í PS3 tölvum sem smíðaðar voru áður en þunn gerð leikjatölvunnar kom á markað í fyrra.
Seybold kvaðst vonast til að lausn á þessum vanda finnist innan 24 klukkustunda. Hann hvatti þá sem eiga aðra gerð af PlayStation en nýju þunnu gerðina að hvíla leikjatölvuna þar til lausnin hefur fundist. Með því að reyna að nota tölvuna sé hætta á að ekki verið hægt að endurheimta ákveðin gögn.
Gallinn hafði þau áhrif að notendur gátu ekki farið í leiki á netinu og ekki heldur án nettengingar.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























