Tækni & vísindi
| mbl
| 4.3.2010
| 21:07
Ida ekki týndi hlekkurinn
Steingervingurinn Ida er ekki týndi hlekkurinn sem sýnir okkur hvernig apar þróuðust yfir í manneskjur. Þetta er niðurstaða fræðimanna við háskólann í Texas í Austin í Bandaríkjunum í grein sem þeir hafa birt í tímaritinu Journal of Human Evolution. Fjallað er um málið á vef danska dagblaðsins Politiken.
Fyrir tæpu ári var mikið fjallað um merka uppgötvun norska steingervingafræðingsins Jørn Hurum, sem fann 47 milljóna ára gamlan steingerving af lítill veru sem líkist apa og hann taldi sýna í smáatriðum hvernig lífið byrjaði í fyrstu að þróast í átt að manneskjunni. Steingervingurinn hlaut gælunafnið Ida.
Að sögn Chris Kirk, lektors í mannfræði, sýnir steingervingurinn ekki þróunina frá öpum til manna heldur sé um að ræða forvera hálfapa nútímans.
„Allt bendir til þess að þessi vera hafi ekkert með þróun mannsins að gera. Það sem kemur mest á óvart varðandi þennan steingerving, fyrir utan hvað hann hafði varðveist vel, er að hann gefur okkur afskaplega lítið af nýjum upplýsingum,“ segir Chris Kirk.
Hann bendir á að sú apategund sem steingervingurinn tilheyri hafi þegar verið vel skrásettur og að flestir vísindamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að hann tilheyri hálföpum en sé ekki einn af forfeðrum mannsins.

Bloggað um fréttina
-
Arnar Pálsson Óslitið tré lífsins -
Ómar Skapti Gíslason Týndi hlekkurinn fann hin rétta stað! -
Axel Jóhann Hallgrímsson Æ,æ,æ mikil ósköp -
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
Kæliklefar. Frystiklefar. Lausfrystar
Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum. Skammur afhendingartími. Hægt er að fá k...
Viftur -mikið úrval -tilboð á 12V viftum
Tilboð á vatnskassaviftum. Úrval í stærðum frá 20 til 40 cm. Bæði 12 og 24 Volt....
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið.
Ef ósýnilegt blóð e...
Sófasett (2+1)
Lítið notað og vel með farið sófasett 2 +1. Stærð sófa 170cm. Verð 35.000 S. 863...