DNA-miðuð þyngdarstjórnun kvenna
Samkvæmt fréttastofu BBC fólst rannsóknin í því að kanna tengsl gena og mataræðis við þyngdartap. Hundrað og ein kona tók þátt í rannsókninni sem stóð yfir í eitt ár og var þátttakendum skipt í hópa eftir mataræði; mjög lítið kolvetnahlutfall í fæðunni, lítið kolvetnahlutfall/ hátt próteinhlutfall og lítil eða mjög lítil fita. Konunum var svo skipt í þrjá flokka eftir genum, sem sýndu að þær svöruðu fæði sem var lágt í kolvetnum, lágt í fituinnihaldi eða því sem telst fjölbreytt fæða.
Fyrstu niðurstöður sýndu að væru konur á fæði sem samræmdist DNA-uppbyggingu þeirra, mættu þær eiga von á tvöfalt til þrefalt hraðara þyngdartapi en áður. Þó niðurstöðurnar kunni að hljóma vel segjast rannsakendur þó enn eiga eftir að vinna frekar að rannsóknum á þessu sviði.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























