Microsoft verðlaunar TM Software
Microsoft í Bandaríkjunum hefur veitt íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software , dótturfélagi Nýherja, viðurkenningu sem mikilvægasti samstarfsaðili þess í tæknilausnum í almannaöryggi, að því er segir í fréttatilkynningu.
Magnús Ingi Stefánsson hjá TM Software tók við viðurkenningunni á ráðstefnu um almannaöryggi sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Redmond í Bandaríkjunum. Viðurkenningin er veitt TM Software fyrir upplýsingavefgátt sem félagið hefur þróað fyrir Sameinuðu þjóðirnar í samvinnu við Microsoft. Vefgáttin, sem nefnist oneresponse.info, er notuð til þess að samræma hjálparstarf, neyðaraðstoð og þróunarstarf á vegum Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðila. Lausnin var meðal annars notuð af heilbrigðisyfirvöldum í Mexíkó í kjölfar útbreiðslu H1N1 veirunnar á síðasta ári og við samræmingu á hjálparstarfi vegna jarðskjálfta á Haíti í upphafi ársins.
Gísli Ólafsson, tæknilegur ráðgjafi hjá Microsoft Corporation, sem
jafnframt er í alþjóðlegu neyðaraðstoðarteymi Microsoft, segir að TM
Software hafi á síðustu árum unnið náið með Microsoft við að aðstoða
stjórnvöld og alþjóðastofnanir víða um heim við að samhæfa viðbrögð við
náttúruhamförum og farsóttum með aðstoð upplýsingatækni.
„TM Software
hefur mikla þekkingu í uppsetningu á slíkum samskiptalausnum og vakið
athygli fyrir öguð vinnubrögð og fagmennsku í sínum störfum. Það er því
mikill heiður að veita TM Software slíka viðurkenningu sem þakklæti
fyrir þeirra óeigingjarna starf," segir Gísli í tilkynningu TM Software
-
Átök í Aþenu
-
Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni
-
Adele fékk sex Grammy-verðlaun
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla























