Hægt að „sjá“ með tungunni
BrainPort tækið gerir kleift að átta sig á lögun hluta og að lesa með tungunni. http://vision.wicab.com/technology/
Ný tækni hefur gert Craig Lundberg, 24 ára breskum fyrrum hermanni, kleift að „sjá“ með tungunni. Lundberg missti sjónina í sprengjuárás í Írak. Hann getur nú lesið, áttað sig á útliti hluta og gengið um án aðstoðar með hjálp tækisins sem fundið var upp í Bandaríkjunum.
Talið er að þessi nýjung, tunguskjárinn, geti gjörbylt lífi margra sem nú njóta þess ekki að hafa sjón á augum. Lundberg er frá Liverpool í norðvestur Englandi. Hann tapaði allri sjón á báðum augum þegar hann varð fyrir sprengju á meðan hann gegndi herþjónustu í Basra í Írak 2007.
Lundberg hafði búið sig undir að ganga í gegnum lífið, það sem eftir er, með aðstoð blindrahunds. Breska varnarmálaráðuneytið valdi hann, fyrstan Breta, til að prófa tækið BrainPort. Tækið breytir myndum í rafbylgjur sem sendar eru til tungunnar. Þar valda þeir eins konar kitlandi tilfinningu á yfirborði tungunnar.
Notendur tækisins geta lært að túlka rafboð tækisins þannig að þeir átti sig á lögun hlutanna sem augum tækisins er beint að. Búnaðurinn samanstendur af lítilli myndavél sem fest er á sólgleraugu. Hún er tengd við flögu sem notandinn leggur á tunguna til að lesa rafboðin.
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú























