Ástarbríminn endist í 2 ár

Ástin kann að vara að eilífu en það gerir ástríðan ekki. stækka

Ástin kann að vara að eilífu en það gerir ástríðan ekki.

Pör þurfa ekki að hafa áhyggjur af því þótt ástríðan í sambandinu sé ekki eins mikil og í upphafi. Vísindamenn segja nú, að hormótabreytingar geri þetta að verkum og að mesti ástarbríminn fari að kulna eftir um það bil tvö ár. 

Vísindamenn í háskólanum í Pisa á Ítalíu hafa komist að þeirri niðurstöðu, að hormónar, sem gera fólk aðlaðandi hvert í annars augum í upphafi sambands endist aðeins í um tvö ár. Þegar stöðugleiki er kominn í sambandið taka aðrir hormónar völdin. Fjallað er um þessar rannsóknir í tímaritinu Chemistry World. 

Á fréttavef BBC er haft eftir breska sálfræðingnum Petru Boynton, að þessar breytingar séu alls ekki neikvæðar en hætta sé á, að fólk fari að taka hormónalyf til að upplifa á ný spennuna sem það fann fyrir í upphafi sambandsins.

Að sögn BBC mældu ítölsku vísindamennirnir magn hormóns, sem nefnist neutrophin, í blóði sjálfboðaliða. Fólkið var síðan sett undir „ástríðumæliker" og kom í ljós, að magn þessa hormóns var mun meira í fólki, sem var að hefja ástarsambönd, en þeirra sem höfðu verið lengur í samböndum.

Þá kom einnig í ljós að hormónið testósterón jókst í ástsjúkum konum en minnkaði í körlum sem eins var ástatt fyrir. Hins vegar kom í ljós, að þessir „ástarhormónar" voru ekki til staðar hjá þeim, sem höfðu verið í föstu sambandi í 1-2 ár. Komust vísindamennirnir að raun um, að ástríðuhormónarnir höfðu vikið fyrir oxytocin, svonefndum „knúshormón" en það er efni sem kemur af stað hríðum og mjólkurframleiðslu hjá þunguðum konum.    

„Þótt elskendur segi að tilfinningar þeirra vari að eilífu, þá segja hormónarnir aðra sögu," hefur BBC eftir Donatella Marazziti, sem stýrði rannsóknarhópnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Tölvuárás á Íran og Ísrael

Í gær, 20:20 Óþekktur aðili sem kallar sig Flame hefur gerst tölvuárás á nokkur lönd í Miðausturlöndum, m.a. Íran og Ísrael. Flame hefur tekist að safna miklu magni upplýsinga með þessum árásum. Meira »
Venus

Hægt að fylgjast með þvergöngu Venusar

24.5. Senn líður að þvergöngu Venusar, 5.-6. júní, og er undirbúningur í fullum gangi hjá félagsmönnum Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Til að gera sem flestum kleift að skoða sólina á öruggan hátt og sjá Venus á sólskífunni hefur félagið hafið sölu á sérstökum myrkvagleraugum. Meira »

Alþjóðlegt Rúbik-mót á Íslandi

Í gær, 21:18 Stórt alþjóðlegt Rúbik-mót verður haldið á Íslandi í júní. Þar verður keppt í ýmsum greinum tengdum því að leysa Rúbik‘s teninga. Meira »

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.
22.5. Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
22.5. Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
22.5. Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange
22.5. Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
22.5. Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

21.5. Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
21.5. Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
21.5. Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
21.5. Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
21.5. Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »
Finnur.is
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
Snyrti og nuddbekkir
Glæsilegur snyrti og nuddbekkur fáanlegur í 3 litum. 185*60-81cm. Það sem á mynd...
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
15,2 fm bjálkahús - Verð kr. 725.000
Húsið er úr 44mm bjálkum. Húsið er ósamsett og til afhendingar strax. Áætlaður...
 
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...