Ný eðlutegund fannst á Flippseyjum
Vísindamenn hafa uppgötvað nýja eðlutegund á Filippseyjum. Eðlurnar eru mjög stórar eða um tveggja metra langar og tilheyra svokölluðum hópi frýna (varanidae), en í þann hóp teljast stærstu og lengstu eðlur í heimi.
Að sögn vísindamanna er um einstakan fund að ræða. Eðlurnar lifa í skóglendi við Sierra Madre fjallgarðinn í norðurhluta landsins. Frá þessu er greint á fréttavef BBC.
Hreistrið á eðlunum er skærgult, blátt og grænt. Þær éta einvörðungu ávexti. Menn velta hins vegar fyrir sér hvers vegna líffræðingar hafa ekki komið auga á dýrin fyrr.
„Þetta er ótrúlegt dýr,“ segir doktor Rafe Brown, sem er einn vísindamannanna sem lýsir eðlunni í vísindaritinu Biology Letters. Þar kemur m.a. fram hvað það er fágætt að finna jafn stór dýr, sem lifi á landi og hafi áður verið ókunn vísindamönnum.
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað


























