Dánartíðni karla undir sextugu lægst hér

Íslendingar verða almennt langlífir; allar rannsóknir staðfesta það. stækka

Íslendingar verða almennt langlífir; allar rannsóknir staðfesta það. mbl.is/Kristinn

Dánartíðni karlmanna undir sextugu er lægst hér á landi, samkvæmt nýrri könnun, sem bandarískir vísindamenn hafa gert. Sýnir tölfræðin, að 65 karlmenn af hverjum 1000 á Íslandi látast fyrir sextugt. Í Swasilandi, þar sem dánartíðnin er hæst, látast að jafnaði 765 karlar af hverjum 1000 fyrir sextugt.

Dánartíðni fólks undir sextugu hefur lækkað mikið á undanförnum fjórum áratugum eða um 34% að jafnaði hjá konum og 19% hjá karlmönnum. Lífslíkurnar eru hins vegar mjög mismunandi eftir því hvar fólk býr. Rannsóknin, sem gerð var á vegum Washingtonháskóla í Seattle og birt er í breska læknablaðinu The Lancet, sýnir, að 15 ára stúlka í Sambíu er 16 sinnum líklegri til að deyja fyrir sextugt en jafngömul stúlka á Kýpur.  

Með öðrum orðum má búast við því, að af hverjum 1000 ungum konum í Sambíu megi búast við að 400 nái því að verða sextugar.  

Þá leiðir rannsóknin í ljós, að dánartíðni í allri sunnanverðri Afríku er á þessu ári hærri en hún var í Svíþjóð árið 1751, nærri tveimur öldum áður en pensillín kom til sögunnar.

Þótt verulega hafi dregið úr dánartíðni fólks undir sextugu frá árinu 1970 fjölgaði dauðsföllum í þessum aldursflokki mikið á tveimur svæðum á jörðinni undir lok síðustu aldar en af mismunandi ástæðum. 

Á svæðinu sunnan Saharaeyðimerkurinnar í Afríku stafaði hækkandi dánartíðni aðallega af mikilli útbreiðslu alnæmis en um 1,5 milljónir manna láta lífið af völdum þess sjúkdóms árlega á þessu svæði.

Á sama tímabili hækkaði dánartíðnin verulega í Austur-Evrópu í kjölfar falls Sovétríkjanna árið 1991.  

Fram kemur í rannsókninni, sem byggði m.a. á manntölum og skráningu dauðsfalla, að þau fimm lönd þar sem dánartíðni karlmanna undir sextugu er minnst eru Ísland, Svíþjóð, Malta, Holland og Sviss. 

Löndin fimm þar sem dánartíðni kvenna á þessum aldri er minnst eru Kýpur, Suður-Kórea, Japan, Grikkland, Ítalía og Spánn.  

Stofnun Bill og Melindu Gates fjármagnaði rannsóknina.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Tækni og vísindi »

Íranar komast ekki á netið

Í gær, 18:05 Írönsk stjórnvöld hafa undanfarna daga takmarkað aðgang borgara sinna að netinu svo þeir geta til dæmis ekki komist í tölvupóst í gegnum Gmail, Yahoo og Hotmail. Meira »
Grímur tengdar samtökunum Anonymous.

Árás á vefsvæði CIA

10.2. Vefsvæði bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, er óaðgengilegt eftir tölvuárás samtakanna Anonymous fyrr í dag. Meðlimir samtakanna hafa fagnað sigri á samfélagsvefnum Twitter á sama tíma og talsmaður CIA sagði við fréttaveituna AFP að málið væri í rannsókn. Meira »

Norðurljósin utan úr geimnum myndskeið

Norðurljós
10.2. Alþjóðlega geimstöðin náði nýverið mögnuðum myndum af norðurljósum á fleygiferð yfir jörðinni. Norðurljós sjást allt frá Mexíkó til Kanada í janúar. Meira »

Lyf snýr við þróun Alzheimer

Heilbrigt heilahvel (t.h.) og heilahvel úr alzheimersjúklingi.
10.2. Eftirtektarverður árangur hefur náðst við að snúa við þróun Alzheimer-sjúkdóms í músum með því að beita þekktu krabbameinslyfi. Í tímaritinu US journal Science segir að vonast sé til þess að um tímamót sé að ræða í baráttunni við sjúkdóminn. Meira »

Snjallsímar eru kuldaskræfur

Snjallsímar þola illa frost samkvæmt tilraun sem finnskt tæknitímarit gerði.
9.2. Snjallsímar þola illa frost og fimbulkulda. Verulega hægir á virkni þeirra þegar frost fer niður í fimm gráður og sumir þeirra hætta að virka við tíu gráðu frost. Eldri gerðir farsíma þola kuldann betur. Þetta kom fram í tilraun finnsks tæknitímarits. Meira »

Óhefðbundin fjáröflun fyrir tölvuleik

Framhaldið af Psychonauts er væntanlegt í kjölfar óvenjulegrar fjáröflunar.
10.2. Tölvuleikjahönnuður sem gekk illa að fá styrk frá framleiðslufyrirtækjum til að búa til framhald á vinsælan leik sinn hóf fjáröflun á veraldarvefnum. Viðtökurnar fóru fram úr öllum væntingum. Meira »

300 milljónir spjaldtölva árið 2015

Frá UT-messunni í dag.
9.2. Um 300 milljónir spjaldtölva seljast árið 2015. Á sama tíma er gert ráð fyrir að um 1,1 milljarður snjallsíma seljist. Þetta segir Guðmundur Arnar Þórðarson, sérfræðingur hjá Nýherja, en hann hélt erindi um sýndarvæðingu á UT-messunni sem fram fer í dag og í kvöld. Meira »

Windows 8 frumsýnt 29. febrúar

8.2. Prufuútgáfa af Windows 8 stýrikerfinu verður kynnt á hlaupársdegi, 29. febrúar næstkomandi. Tölvurisinn Microsoft mun kynna kerfið með viðhöfn á hóteli í Barcelona en þar stendur fyrir dyrum risastór tölvuráðstefna. Meira »

Reyna að laða fleiri að EVE Online

Eve Online gerist í fjarlægum heimi.
8.2. Tölvuleikjafyrirtækið CCP hefur látið útbúa ný vefsvæði fyrir tölvuleikinn EVE Online. Annars vegar er um að ræða síðu þar sem allar upplýsingar eru fyrir hendi skyldi einhver hafa áhuga á að hefja leik, en hins vegar hefur samfélagssvæðið verið stórbætt, en þar geta spilarar rætt saman. Meira »

Helmingur 8-12 ára á Facebook

7.2. Næstum helmingur 8-12 ára breskra barna notar Facebook þótt þau séu of ung til að mega vera á samskiptavefnum. Í dag er alþjóðlegi netöryggisdagurinn. Meira »

Stöðuvatn einangrað í 20 milljónir ára

Rússnesku vísindamennirnir fagna á Suðurskautslandinu.
8.2. Loksins eftir tveggja áratuga rannsóknir hefur rússneskum vísindamönnum tekist að bora niður að risastóru stöðuvatni undir íshellunni á Suðurskautslandinu. Hugsanlega er í vatninu að finna fornar lífverur sem gætu gagnast við leit að lífi á öðrum hnöttum. Meira »

Drinkorexía er áhyggjuefni

7.2. Sú tilhneiging ungmenna að svelta sig til þess að geta neytt áfengis án þess að hafa áhyggjur af því að fitna er kölluð „drinkorexía“ og er vaxandi áhyggjuefni víða um heim. Meira »

10 þúsund tíst á sekúndu

Aðdáendur New York Giants fagna sigrinum í Ofurskálinni.
7.2. Óhætt er að segja að samskiptaþráðurinn Twitter hafi logað á meðan leikið var til úrslita í Ofurskálinni. Á síðustu 180 sekúndum leiksins voru send að meðaltali 10 þúsund tíst á hverri sekúndu. Meira »

iPhone styrkti stöðu sína

iPhone seldist vel í fyrra.
6.2. iPhone æði greip um sig á síðasta ári á heimsvísu og við það komst Apple í þriðja sætið yfir þá farsímaframleiðendur sem seldu mest. Nokia er sem fyrr í efsta sæti en fyrirtækið seldi 113,5 milljónir síma. Meira »

Breyttir lífshættir skipta sköpum

Reykingar drepa
3.2. Hægt er að koma í veg fyrir 30% krabbameinstilfella með breyttum lífsháttum. Einn helsti áhættuþátturinn er reykingar.  Meira »

„Snjallasta vél í heimi“

Watson stórtölvan
7.2. Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna.  Meira »

„Ekki treysta gervihnattasímum“

Gervihnöttur fyrir GPS-staðsetningarkerfi á sveimi yfir jörðinni.
5.2. Sérfræðingar vara við því að með næga tölvuþekkingu geti hver sem er hlerað gervihnattasíma sem meðal annars ýmis stjórnvöld nýti sér til samskipta á svæðum þar sem ekki er hægt að treysta á hefðbundna samskiptatækni. Meira »

Fara með farþega í geiminn

Geimskutla. Mynd úr myndasafni.
2.2. Fyrsta tilraunaflug með farþega til alþjóðlegu geimstöðvarinnar gæti orðið að veruleika í mars. Þetta staðhæfir NASA, bandaríska geimferðastofnunin. Meira »
Finnur.is
Kvine zices Amerikst rúm
Gott og vel me fari Amerikt stærð 140x193 fæst fyrir lítið þarf að losna vi það ...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
Baðvaskur
Til sölu baðvaskur teg.: Ideal standard stærð 48x42 Er í umbúðum Verð kr 8000 ...
Gistiheimilið Sjónarhóll, Stykkishólmi
Ódýr gisting í frábæru umhverfi....
 
Samkoma
Félagsstarf
Kaffi, sunnudag kl.16 Fyrir samko...
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Sölumaður óskast
Sölu/markaðsstörf
Sölumaður óskast Í boði er spennandi söl...