Repjuolía á ráðherrabíl
Kristján Möller samgönguráðherra fór í heimsókn til Siglingastofnunar í dag og fékk á bílinn íslenskt umhverfisvænt eldsneyti sem Hermann Guðjónsson siglingamálastjóri og Gísli Viggósson forstöðumaður Rannsókna- og þróunarsviðs afhentu.
Um er að ræða fyrsta bíódísilinn sem framleiddur hefur verið á Íslandi í sérsmíðuðum búnaði í eigu Siglingastofnunar, en eldsneytið er afrakstur rannsóknarverkefnis sem stofnunin hleypti af stokkunum fyrir tveimur árum, samkvæmt fréttatilkynningu.
Var verkefnið í umsjón Jóns Bernódussonar verkfræðings hjá Siglingastofnun og unnið í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og bændur á nokkrum stöðum á landinu. Fól það í sér tilraunaræktun á tvíærum káljurtum sem nefnast repja og nepja sem úr má vinna m.a. umhverfisvæna dísilolíu. Jafnframt gerði það ráð fyrir að ræktað væri á annars ónýttum landsvæðum og kæmi þannig ekki í stað matvælaræktunar.
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
























