Tækni & vísindi
| Morgunblaðið
| 26.6.2010
| 5:30
| Uppfært
7:26
Finna ekki til fyrstu 24 vikurnar
Vísindamenn í Bretlandi hafa komist að þeirri niðurstöðu að fóstur kenni ekki sársauka fyrstu 24 vikur meðgöngunnar. Þessi niðurstaða stangast á við eina af röksemdum andstæðinga fóstureyðinga fyrir því að fóstureyðingarmörkin verði lækkuð úr 24 vikum í 22 eða 20 vikur, að því er fram kemur á fréttavef The Daily Telegraph.
Breska heilbrigðisráðuneytið hafði falið Konunglega læknaráðinu (Royal College) í fæðingarlækningum og kvensjúkdómafræði að fara vandlega yfir þau vísindalegu gögn sem liggja fyrir í málinu. Vísindamennirnir komust að þeirri niðurstöðu að taugaendar í heila fóstranna hefðu ekki þroskast nóg til að þau gætu skynjað sársauka fyrstu 24 vikur meðgöngunnar.
Allan Templeton, rektor, sem stjórnaði rannsókninni, sagði að fullyrðing andstæðinga fóstureyðinga um að fóstur gætu kennt sársauka innan 24 vikna byggðist á rannsóknum á fyrirburum. Rannsóknir á fóstrum í móðurkviði leiddu hins vegar í ljós að svo væri ekki.
Bloggað um fréttina
-
Nonni Hvað orsakar? -
Tinna Gunnarsdóttir Gígja Skiptir ekki máli -
Klukk Ókei, þá? Allir sammála?
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
125 cc Dirt Bike
Til sölu lítið notað X-motos DirtBike árg. 2008. Tilboð óskast ! Baldur 848-6972...
ÓSKUM EFTIR HILLUREKKUM
Óskum eftir hillurekkum (brettarekka) fyrir vörulager/hús. Hæð ca. 10 m. Nánari ...
Vestfirskur hjallþurkaður harðfiskur.
Er með hjallþurkaðan steinbít og ýsu flök til sölu
sendi fisk um allt land í pó...
Heimagisting Akureyri
Til leigu nýstandsett herbergi á góðum stað á Akureyri. Einungis er um að ræða g...
























