Tækni & vísindi
| AFP
| 29.7.2010
| 21:50
Microsoft þróar spjaldtölvu
Microsoft vinnur að því hörðum höndum ásamt fleiri tölvufyrirtækjum að smíða spjaldtölvu sem geti skákað iPad frá Apple. Reuters
Brýnasta verkefni Microsoft nú er að þróa spjaldtölvu sem keyrir Windows, að því er Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, sagði í dag. Hann lét þessi orð falla á fundi með fjármálasérfræðingum í höfðustöðvum Microsoft. Fundurinn var sendur út á netinu.
Hann sagði að Microsoft yrði að leggjast á eitt með samstarfsfyrirtækjum á sviði vélbúnaðarsmíði. Markmiðið er að smíða spjaldtölvu sem getur keppt við hina vinsælu iPad tölvu frá Apple.
Ballmer sagði að Microsoft vinni að verkefninu með fyrirtækjum á borð við Hewlett-Packard, Lenovo, Asus, Dell, Samsung, Toshiba, og Sony. Markmiðið er ekki að búa til „bara eitthvað heldur að koma með vörur sem fólk virkilega langar að kaupa.“Ballmer lét jákvæð orð falla um iPad spjaldtölvuna en hún mætir þörfinni fyrir tölvur með snertiskjám sem fylla bilið á milli snjallsíma og kjöltutölva.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
Sirius Hundasnyrting, Hundaheim Mosfellsbæ
Tökum allar gerðir hunda í snyrtingu - Persónuleg þjónusta og frábær verð, gerið...
Góður Harley hippi á einstöku tilboði
HD Dyna Wide Glide Custome árg. 1999. ek. 12 þús. míl. innfl. 2008, ásett 1500 þ...
Vatnshitakútur Óskast
óska eftir ca 50 líta vatnshitakút í sumarhús, sem helst gæti passað á bak við h...
4ra herb.108 m2 íbúð til sölu. verð 22m.
Í Engihjalla í Kópavogi. Laus frá 1. júlí n.k., 3 svefnh. svalir í vestur, áhvíl...























