Tölvuþrjótar herja á farsímanotendur

Farsímar verða sífellt fullkomnari handtölvur. Með því eykst hættan á að tölvuþrjótar brjótist inn í ... stækka

Farsímar verða sífellt fullkomnari handtölvur. Með því eykst hættan á að tölvuþrjótar brjótist inn í símana. Reuters

Sérfræðingar í öryggisvörnum fyrir hugbúnað vara við því að farsímanotendur bjóði hættunni heim með uppsetningu allskyns forrita í síma, sem aftur eru fullir af viðkvæmum upplýsingum.

Ráðstefna um öryggisvarnir og tölvubúnað fer nú fram í bandarísku borginni Las Vegas. Samkvæmt frétt frönsku fréttaveitunnar AFP er heitasta umræðuefnið öryggismál farsímanotenda.

Farsímar hafa verið þróaðir í átt að litlum tölvum sem m.a. eru notaðir til að sinna bankaviðskiptum og til að geyma viðkvæmar upplýsingar, s.s. ýmis lykilorð og símanúmer, auk þess sem þeir gefa upp staðsetningu viðkomandi notanda. Slíkar upplýsingar eru afar verðmætar tölvuþrjótum.

Undarleg virkni hugbúnaðar

Í kjölfar þess að bandaríski tölvurisinn Apple gerði notendum kleift að hala niður og setja upp alls kyns hugbúnað á iPhone-símann hefur mikið æði gripið um sig í þeim geira, þ.e. gerð lítilla forrita fyrir farsíma. Farsímanotendur eru svo afar ómeðvitaðir um hættuna sem slíkum hugbúnaði getur fylgt.

Öryggisfyrirtækið Lookout kannaði um þrjú hundruð þúsund forrit fyrir farsíma og komst að því að virkni þeirra getur verið hreint út sagt undarleg. Til að mynda sendi hugbúnaður notaður til að skipta um skjámyndir á farsíma símanúmer úr símanum yfir netið til kínversks hugbúnaðarfyrirtækis. Tilgangurinn var alls óþekktur.

Mikil hætta í nánustu framtíð

Í öðru tilviki braust tölvuþrjótur inn í tölvuleik sem var til sölu og ætlaður farsímum, kom fyrir vírus í honum og dreifði frítt á netinu. Allmargir töldu sig vera með upprunalegu útgáfuna en áttuðu sig ekki á því, að einu sinni í mánuði hringdi síminn í átta símanúmer. Símtölunum var ekki svarað heldur færðust tólf dollarar á símareikning viðkomandi, og runnu fjármunirnir til tölvuþrjótsins. Auðséð er, að slíkt getur skapað tölvuþrjótum gríðarlega háar fjárhæðir.

Á ráðstefnunni telja málsmetandi menn í öryggisfræðum, að sjálfvirk úthringing síma í gjaldnúmer verði helsti vandi farsímaeigenda í nánustu framtíð. Tölvuþrjótar hafi áttað sig á því að auðveldara er að lauma sýktum hugbúnaði inn í símana en tölvur.

Notendur þurfa því að vara sig á því hvaða hugbúnað þeir setja upp. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Tölvuárás á Íran og Ísrael

Í gær, 20:20 Óþekktur aðili sem kallar sig Flame hefur gerst tölvuárás á nokkur lönd í Miðausturlöndum, m.a. Íran og Ísrael. Flame hefur tekist að safna miklu magni upplýsinga með þessum árásum. Meira »
Venus

Hægt að fylgjast með þvergöngu Venusar

24.5. Senn líður að þvergöngu Venusar, 5.-6. júní, og er undirbúningur í fullum gangi hjá félagsmönnum Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Til að gera sem flestum kleift að skoða sólina á öruggan hátt og sjá Venus á sólskífunni hefur félagið hafið sölu á sérstökum myrkvagleraugum. Meira »

Alþjóðlegt Rúbik-mót á Íslandi

Í gær, 21:18 Stórt alþjóðlegt Rúbik-mót verður haldið á Íslandi í júní. Þar verður keppt í ýmsum greinum tengdum því að leysa Rúbik‘s teninga. Meira »

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.
22.5. Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
22.5. Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
22.5. Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange
22.5. Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
22.5. Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

21.5. Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
21.5. Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
21.5. Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
21.5. Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
21.5. Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »
Finnur.is
Terrano II 2,7 TD '96 varahlutir
Hef til sölu ýmsa varhluti í Terrano II 96 2,7 TD vél, dekk, ljós, boddy hlut...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
VW og Skoda varahlutir 5341045
Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaupum bíla til ...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Til sölu120 fm. raðhús
Til sölu
Til sölu 120 fm. Raðhús ...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...