Android sækir enn í sig veðrið

Google ætlar sér stóra hluti á farsímamarkaði.
Google ætlar sér stóra hluti á farsímamarkaði. Reuters

Sókn Google á farsímamarkaði færist stöðugt í aukana. Android stýrikerfið frá Google, sem hannað er fyrir farsíma, nýtur sívaxandi vinsælda á kostnað stýrikerfa frá Apple, RIM, Palm og Microsoft.

Samkvæmt nýrri bandarískri könnun eiga 53,4 milljónir bandaríkjamanna snjallsíma. Það er aukning um 11 af hundraði frá fyrri ársfjórðungi.

Mest aukning var á sölu síma með Android stýrikerfi frá Google. Google jók þannig markaðshlutdeild sína úr 12 prósentum í 17 prósent. 

Markaðshlutdeild Apple, RIM og Microsoft skertist en Palm jók þó markaðshlutdeild sína um 4,9 prósent.

Apple framleiðir iPhone símana og RIM framleiðir BlackBerry.

Samkvæmt könnuninni nota um tveir þriðju farsímanotenda í Bandaríkjunum símana til að senda sms eða tölvupóst og um þriðjungur notar þá til að vafra um netið. 31,4 prósent notenda hlaða niður aukahlutum á símann (applications) og um 21,8 prósent nota símana til að fara á samskipta- og bloggsíður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert