Lífvænleg reikistjarna fundin?

Er líf á öðrum hnöttum?
Er líf á öðrum hnöttum?

Hópur bandarískra vísindamanna segist hafa fundið reikistjörnu á stærð við jörðina sem vegna staðsetningar sinnar gæti verið lífvænleg. Ástæðan er sú að stjarnan er í miðju lífbeltis sólstjörnu, belti sem er sá staður í hverju sólkerfi þar sem fljótandi vatn gæti verið til staðar á yfirborði reikistjarna. Frá þessu er greint í nýjasta hefti Astrophysical Journal sem kom út í dag og er um skrifað á Stjörnufræðivefnum,  www.stjornuskodun.is

Verði uppgötvunin staðfest er um að ræða fyrstu lífvænlegu reikistjörnuna sem finnst utan okkar sólkerfis.

Í greininni er sagt frá því að tvær reikistjörnur hafi fundist umhverfis stjörnuna Gliese 581 sem er í um 20 ljósára fjarlægð frá jörðinni í stjörnumerkinu Voginni.

Þetta er ekki fyrsta sinn sem reikistjörnur finnast umhverfis Gliese 581. Áður vissu menn um fjórar aðrar. Sólkerfið sem hér um ræðir inniheldur því að minnsta kosti sex reikistjörnur.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert